fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það sem einkennir þessa ríkisstjórn er að við hvert vandamál virðist svarið alltaf vera hið sama; meira kerfi, meiri miðstýring og meiri íhlutun í líf fólks og rekstur fyrirtækja. Þegar verðbólgan eykst og vextir bíta heimilin í landinu er ekki horft fyrst til þess að skera niður útgjöld ríkisins, forgangsraða betur eða minnka skuldabyrðina? Nei, svarið er aftur og aftur að sækja meira fé til fólksins og treysta því svo að kerfið haldi. Það er þessi hugsun sem hefur sett mark sitt á þessa fjármálaáætlun þar sem ríkisstjórnin viðurkennir sjálf að aðhaldið sé einkum á tekjuhliðinni. Það er með meiri álögum á sama tíma og afgangurinn sem hún hrósar sér af er nánast enginn. Það er auðvitað sérstakt að ríkið ætlar að hreykja sér af því að ætla að skila ríkissjóði með afgangi upp á 1 milljarð þegar við sjáum sveitarfélög hér í grenndinni við okkur eins og Garðabæ sem var að tilkynna um tæpa 3 milljarða í afgang og Kópavogur skilaði 2024 ja, rúmum 4 milljörðum.
En stjórnlyndi birtist ekki bara í skattstefnunni. Það birtist líka í viðbragðinu við verðbólgu. Hæstv. forsætisráðherra sem lofaði að negla niður vexti og verðbólga er búinn að átta sig á því að planið er komið út í skurð. Þá var kynnt aukaplan sem fólst í heilum þremur aðgerðum til að ná tökum á málum. En þegar aðgerðirnar voru kynntar birtist sama gamla Samfylkingin; tímabundnar skattbreytingar, endurlífgun verðlagseftirlits ríkisins og þeirrar pólitísku hugmyndar að ríkið geti fylgst með, þrýst á og stýrt verðmyndun betur en markaðurinn sjálfur.
Staðreyndin er einföld. Engin þjóð getur skattlagt sig út úr verðbólgu og engin þjóð hefur byggt stöðugleika á því að ríkið taki sífellt stærri sneið af verðmætunum. Það sem þarf er agi, minni, skuldasöfnun, lægri álögur og meira svigrúm fyrir heimilin og fyrirtækin. Það hefur Sjálfstæðisflokkurinn boðað.