157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:40]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið og fyrir að taka þátt í umræðunni. Við höfum saknað einhverra ráðherra hér í þessari umræðu núna síðustu klukkustundirnar og í gær. Ég nefndi áðan að hér birtist okkur aftur sama gamla Samfylkingin. Hér er hugsun sem á sér rætur í frjálsum viðskiptum og ofurtrú á stjórnsýslunni. Hér á að taka aftur upp og endurlífga ríkisrekið verðlagseftirlit vegna þess, og forsætisráðherra var einmitt að segja það hér rétt áðan, þau treysta ekki fyrirtækjunum, treysta ekki olíufélögunum til að skila til baka virðisaukanum sem þessi lækkun felur í sér. Ég held að hæstv. forsætisráðherra hafi nú bara eitthvað misskilið stjórnarandstöðuna því að stjórnarandstaðan hefur ekkert á móti því þó að skattar séu lækkaðir og hér sé lækkaður virðisaukaskattur á eldsneyti. Við höfum aftur á móti gagnrýnt hvernig þetta er fram sett. Þetta er sett þannig fram að þetta muni skipta sköpum í að ná niður verðbólgu núna á næstu mánuðum og við höfum sagt: Nei, þetta mun hafa einhver áhrif. Er það nóg? Nei, það er ekki nóg gert og mér finnst það ekki falleg kveðja frá hæstv. forsætisráðherra til stjórnenda olíufélaganna að væna þá um slíkt vantraust í frjálsum viðskiptum þar sem samkeppni er mikil, að þeir muni ekki skila þessu til baka. Og svo talar hæstv. forsætisráðherra hér um hvað aðhaldið er mikið og hvað sparnaðurinn er mikill og tiltektin er mikil þegar raunin er og það er staðreynd að þessi sama ríkisstjórn fór í 143 milljarða útgjaldaauka í síðustu fjárlögum. Það er nú öll hagræðingin, öll tiltektin. Og stjórnarandstaðan er ekki ein um að gagnrýna þessa fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar vegna þess að fjármálaráð er búið að tæta í sig þessa fjármálaáætlun. Ég ætla bara að biðja þá sem eru að fylgjast með útsendingu um að lesa það álit fjármálaráðs.