fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég held að hæstv. forsætisráðherra hafi vitað í rauninni hvað ég átti við þegar ég var að tala um hættuna á misnotkun á bótakerfi, m.a. af hálfu hælisleitenda og þeirra sem nýta endurhæfingarlífeyri án þess að eiga endilega rétt á því. Þekkt eru ýmis dæmi um slíkt og auðvitað er gríðarlegur vöxtur í því og ríkisstjórnin hefur heldur ýtt undir það. En látum það liggja á milli hluta í bili.
Við þurfum að snúa okkur að umferðinni og skattastefnu ríkisstjórnarinnar þar. Það var reyndar mjög áhugavert að heyra viðbrögð hæstv. forsætisráðherra við spurningum hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur hérna áðan. Það var ekki laust við að hæstv. ráðherra dytti í gömlu skýringarnar frá stjórnvöldum í Austur-Þýskalandi: Ef menn gera ekkert af sér þá þurfa þeir ekki að óttast stjórnvöld. Það virðist vera nálgunin núna. Ég hef að sjálfsögðu ekkert út á það að setja að menn fylgist með þróun verðlags, ASÍ, Samkeppniseftirlitið, hæstv. forsætisráðherra sjálfur, og hjálpi neytendum að refsa þeim fyrirtækjum sem reyna hugsanlega að svindla á þeim. En þegar farið er að veita ríkisstofnunum refsiheimildir og jafnvel ráðherra heimild til að setja hámarksverð á vörur þá eru menn komnir dálítið langt í austur, svo aftur sé vísað í gamla tímann.
En spurning mín til hæstv. ráðherra er þessi: Hversu oft þurfa menn að greiða fyrir vegina? Það er stöðugt verið að finna upp nýjar álögur á almenning. Það eru eldsneytisgjöldin og það er kílómetragjaldið og svo eru boðuð veggjöld og svokallaðar Betri samgöngur fengu stærstu gjöf Íslandssögunnar til þess að standa undir framkvæmdum. Hvað þarf meira? Svo er þessu mætt með þeirri hundalógík að álögur á samgöngur þurfi að nema 1,7% af landsframleiðslu. Hvers konar viðmið er það eiginlega að mati hæstv. forsætisráðherra?