157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:50]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Það er náttúrlega furðulegt viðmið að taka ákvarðanir um hversu mikla peninga eigi að setja í samgöngur út frá hlutfalli af landsframleiðslu. Hv. þm. Bergþór Ólason dró þetta prýðisvel fram í ræðu í gær þegar hann benti á það að ef stofnað væri fyrirtæki á Íslandi sem gengi síðan mjög vel — tók dæmi af Novo Nordisk, lyfjafyrirtækinu í Danmörku sem gekk svo vel að það hafði strax veruleg áhrif á landsframleiðslu Danmerkur — ef Íslendingar lentu í því að íslensku fyrirtæki gengi það vel að það hefði teljandi áhrif á landsframleiðsluna, á þá að refsa vegfarendum með því að hækka gjöld á þá, af því að gjaldtakan þurfi að vera 1,7% af landsframleiðslu? Þetta er algjör hundalógík, eins og ég held að hæstv. forsætisráðherra hljóti að gera sér grein fyrir, eins og er reyndar því miður mjög algengt í nálgun þessarar ríkisstjórnar á efnahagsmál en hún tekst á við það með því að lifa í hliðarveruleika og pakka öllu inn í einhverjar umbúðir. Þetta eru hins vegar umbúðir sem virka ekki.

Að lokum spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvað hyggst hæstv. ráðherra sjálfur gera í sínu ráðuneyti til að spara? Eins og mér hefur verið tíðrætt um á undanförnum árum hefur umfang forsætisráðuneytisins vaxið gríðarlega. Það fór reyndar af stað fyrir tíð núverandi hæstv. forsætisráðherra en hvernig hyggst hæstv. ráðherra bregðast sjálfur við í sínum húsum í forsætisráðuneytinu? Því að eftir höfðinu dansa limirnir. Hvaða sparnaðarráða er að vænta úr forsætisráðuneytinu?