157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:52]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Já, við getum og erum með skiptar skoðanir á því hversu mikið eigi að fara í gjaldtöku á bifreiðum. Það er mjög auðvelt að standa hérna og gera athugasemdir við að það þurfi að borga fyrir vegakerfið. Það er bara gott og blessað. Það mun þá bara reyna á þegar á að finna fjármagn fyrir þessu, ef það er ekki fundið þarna þarf að finna það annars staðar. Já, það þarf að hagræða. Það er ástæða fyrir því að þetta hefur verið markmið þvert á hið pólitíska litróf í langan tíma. Það kann vel að vera að hv. þingmaður sé með aðrar lausnir á því. Við erum til að mynda að ráðast í þetta innviðafélag sem ég hygg m.a. — er ekki hér í þinginu búið að leggja fram frumvarp af hálfu annarra flokka sem felur í sér ekkert ósvipaða hugmynd? Vissulega kann Miðflokkurinn að vera sér á báti í því máli. Ég virði það en ég held að við áttum okkur öll á því að það þarf að finna leiðir til þess að fjármagna vegakerfið. Aðalatriðið er ekki gjaldtakan per se heldur hvers konar tækifæri þetta skapar fyrir landsmenn til verðmætasköpunar, vaxtar, til að sækja vinnu, öryggi og annað og það liggur alveg fyrir. Þessi hugmyndafræði um að hlutir megi ekki fylgja landsframleiðslu — staðreyndin er sú að kakan vex og landsframleiðslan vex m.a. út af fólksfjölgun, m.a. vegna þess að fólk er hér að sækja þá aukna þjónustu og ríkið þarf að þjónusta það líka. Þess vegna hefur þetta alls staðar í heiminum verið notað sem mælikvarði á umfang hins opinbera, ekki absalút talan og það er ekki tilviljun þessarar ríkisstjórnar.

Varðandi hvað ég er að gera í mínu ráðuneyti til að spara: Við fórum yfir þetta þegar hagræðingaraðgerðirnar fóru af stað á sínum tíma. Ég er ekki með þær tölur núna á blaði en ég veit að það eru til tölur um þetta í forsætisráðuneytinu sem mér er ljúft og skylt að birta varðandi fækkun stöðugilda sem hefur nú þegar átt sér stað. Ég hef verið dugleg við að breyta verkefnaskipan í forsætisráðuneytinu og sagt að ég vilji ekki vera með óþarfastarfsfólk í ráðuneytinu sem ætti að vera í fagráðuneytum eða sinna sérverkefnum og við höfum tekið þar til. Síðan mun auðvitað 1% fækkun stöðugilda eiga við í þessari stjórnsýslu eins og annars staðar þannig að þetta er eitthvað sem við þurfum að huga að.