157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Svo að það sé alveg kristaltært, þá er sá sem hér stendur ekki á móti stofnun innviðafélags eða þessum framkvæmdum sem er verið að tala um að fara í. Hins vegar er ég að ræða veruleikann sem er uppi, hvað við erum að fást við. Hér hafa verið hástemmdar yfirlýsingar um hvað allt sé fullfjármagnað og framkvæmdir séu að fara af stað en það þarf að vera ákveðinn veruleiki á bak við hluti. Það er það sem sá sem hér stendur er að benda á, frú forseti. Mér sýnist vera töluvert langt í land miðað við stöðuna. Lífeyrissjóðirnir eru fyrst og fremst hugsaðir til að fjármagna þessar framkvæmdir. Það eru mismunandi leiðir, skuldabréfaútgáfa eða bara beint eignarhald eða aðrir þættir. Það eru ekki margar þingvikur eftir þannig að það er svo mikilvægt að það sé einhver heildarmynd af þessu vegna þess að það er náttúrlega víða beðið eftir að þessar framkvæmdir fari af stað. Ég er, svo það sé sagt, mjög hlynntur Sundabraut og hef verið það um áratugaskeið. Ég er bara að tala um veruleikann sem við erum að fást við, um það snerist spurningin, þ.e. hver veruleiki málsins er. Innviðafélagið á að mínum dómi töluvert eftir í land, það á eftir að ná samkomulagi, sérstaklega við lífeyrissjóðina, um hvernig eigi að standa að málum. Þeir náttúrlega ráðstafa eða fara með núna 8.500–9.000 milljarða. Það er bara jákvætt fyrir eignasafnið að fá inn í svona innviðafélag, en ég er að tala um veruleikann, að það náist sátt um leiðina við lífeyrissjóðina þannig að þeir komi inn í fjármögnunina. Um það snýst innviðafélagsfrumvarpið, þ.e. að búa til umhverfi þannig að þeir sem fjárfesta eða koma með fjármagn inn í framkvæmdirnar hafi það trausta löggjöf á bak við sig að þeir treysti sér til að fara í framkvæmdina. Það er það sem ég er að benda á vegna þess að umræðan hefur verið svo hástemmd. Hér er alltaf verið að tala um að samgönguáætlun og allt sé fullfjármagnað. Það er málið.

Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Hvað telur hann núna varðandi samgönguáætlunina, hefur hann trú á því að hún sé að fara í gegn? Svo ræðum við Loftbrúna á morgun.