fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Um byggðastefnu vil ég segja að það er sennilega enginn málaflokkur í ríkisfjármálum þar sem ríkið fær jafn mikið fyrir peninginn í fjárfestingum og í byggðamálum. Þetta eru ekki háar fjárhæðir en skipta oft sköpum fyrir lítil byggðarlög. Ég mun í haust koma með endurskoðaða byggðaáætlun. Það er verið að vinna í henni núna. Við erum búin að setja í samráð grænbók og það er verið að vinna hvítbók. Það er núna verið að fara hringferð í kringum landið, embættismenn og fulltrúar Byggðastofnunar, til að kynna og óska eftir hugmyndum varðandi aðgerðaáætlanir sem verið er að sameina og endurskoða, halda áfram með það sem er gott og hefur virkað vel og svo endurskoða aðra þætti.
Varðandi sóknaráætlanir þá hafa bæði Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, og Norðmenn horft til okkar í þeim efnum. Þær hafa tekist mjög vel og við höfum verið er að vinna í því að fá fleiri ráðuneyti inn í þá vinnu. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur tekið þátt í þessu með okkur og líka umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Við erum að reyna að fá fleiri ráðuneyti og vonumst til að fleiri ráðuneyti komi inn í sóknaráætlanirnar.
Varðandi klasa- og fjarvinnu er Byggðastofnun að vinna verkefni í Dalabyggð sem lýtur að svona fyrirtækjaklasa. Ég held að þetta sé það sem mun koma meira í framtíðinni. Ég þekki af eigin raun fjarvinnustöðvar og svoleiðis, sem er gríðarlega mikilvægt og ég held að það þurfi að opna þetta enn þá meira. Ég held að þessi tilraun með klasafyrirtækin og að fólk geti verið með starfsstöðvar úti á landi og líka óstaðbundin störf skipti sköpum. Þetta opnar fyrir aðgengi fólks að landsbyggðinni með öðrum hætti en bara sem ferðamenn.
Ég held að það sé líka annað sem skiptir miklu máli í byggðamálum og það eru þessar starfsstöðvar sem eru nú þegar fyrir, eins og Fæðingarorlofssjóður á Hvammstanga og Atvinnuleysistryggingasjóður á Skagaströnd. Það þarf að efla þessa staði og bæta við starfsmönnum á þá staði sem þegar eru með opinbera starfsemi. (Forseti hringir.) Ég held að það mætti gera betur í að flytja störf út á land hvað þetta varðar. Það er gríðarlega mikill félagslegur þáttur, ekki síst þegar kemur að klösum og sameiginlegum starfsstöðvum.