157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:23]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ráðherra segir að ríkisstjórnin sé ekki að finna upp hjólið og samkvæmt svörum hans get ég ekki betur skilið en svo að hann ætli ekki að fara að ráðleggingum fjármálaráðs. Hann telur ekki hægt að leggja heildstætt mat á fjárhagslega áhættu og tryggja gagnsæi um mögulegar skuldbindingar ríkissjóðs áður en innviðafélagið verður stofnað. Ég gat ekki betur skilið en að ráðherra ætli ekki að gera það og hann vísar í rauninni á annan ráðherra. (Gripið fram í.)Ókei, gott og vel. — Hef ég fimm mínútur?

(Forseti (EÁs): Nei. Forseti biðst afsökunar.)

Jæja, þar fór það. Mig langar að ræða aðeins við ráðherrann um farnetsþjónustu og almenningssamgöngur. Sú sem hér stendur hefur gert það áður og áhyggjum mínum hefur ekki í rauninni verið svarað, áhyggjum mínum og landsbyggðarinnar. Þetta varðar útfösun 2G og 3G fyrir 4G og 5G. Það er sammerkt með þeim sem hafa komið fyrir umhverfis- og samgöngunefnd að þungar áhyggjur eru af verri tengingum sem skapa óöryggi. Hvað finnst ráðherra um þau svör sem ég hef fengið, ekki frá honum reyndar heldur frá öðrum aðilum, um að ákvörðun um að slökkva á 2G og 3G áður en 4G og 5G séu orðin örugg sé viðskiptaleg ákvörðun? Finnst ráðherra þetta boðlegt fyrir þá aðila á landsbyggðinni sem kannski ná ekki í 112? Mér finnst það ekki. Tekur ráðherra undir það sjónarmið að lágmarksfarnetsþjónusta verði skilgreind sem hluti af grunnsamgönguinnviðum, ekki eingöngu á stofnvegum heldur einnig á lykilleiðum sem tengja byggð og þjónustu?

Síðan eru það almenningssamgöngurnar. Þar er niðurskurður á landsbyggðinni. Það er fullkomlega óboðlegt fyrir þá landsbyggðarhluta sem fyrir þessu verða. Ætlar hæstv. ráðherra að beita sér fyrir því með Vegagerðinni að þetta verði endurskoðað?