fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir framsöguna og fyrir að vera hér til svara sömuleiðis. Ég ætla að taka upp þráðinn þar sem hv. þm. Ingvar Þóroddsson skildi við hann, sem snýr að Loftbrúnni. Það vekur mér ugg að sjá fréttir sem við sáum í dag um hugsanlegar breytingar á Loftbrúnni. Ég heyrði alveg ágætlega hvað hæstv. innviðaráðherra fór yfir í sínu andsvari við hv. þingmann. Hættan verður sú — öll inngrip hins opinbera geta vissulega haft áhrif á miðaverð en ef það á að festa þetta í krónutölu þá þarf hæstv. ráðherra væntanlega að fara þá leið að festa sömuleiðis verð á miðanum. Ég get bara ekki séð hvernig það eigi að virka. Hæstv. ráðherra kom inn á norska leið hér áðan og það verður fróðlegt að fá að heyra aðeins ofan í hana. Hæstv. ráðherra sagði sömuleiðis að þeir fjármunir sem hefði verið ráðstafað til Loftbrúarinnar hefðu ekki dugað og þá þyrfti að bæta við fjármunum. Ef það er þannig að það eigi að miða við að nýta eingöngu þá fjármuni sem lagðir eru til þá er verið að skera niður til þessa verkefnis. Ég get ekki skilið það á annan hátt, ef ekki á að bæta við. Ef þetta á að vera föst krónutala á miða þá getur ekki annað verið en það sé verið að draga saman, þ.e. að þeir fjármunir sem fara í Loftbrúna í dag séu ekki að nýtast. Ég held að öllum sé ljóst mikilvægi þess fyrir landsbyggðina að hafa Loftbrúna og ég held að ég og hæstv. innviðaráðherra (Forseti hringir.) séum algjörlega sammála hvað það varðar. En það verður að vera á hreinu, hæstv. ráðherra, að við séum ekki að skera niður hvað þetta varðar.