157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:41]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er, hefur verið og verður alltaf þannig að við búum í strjálbýlu landi. Massinn býr hér á suðvesturhorninu og það er ástæðan fyrir því að við erum að bjóða upp á þessa þjónustu við landsbyggðina og hvort sem það er í flugsamgöngum og/eða í öðrum verkefnum þá þarf hið opinbera að koma að verkefninu. Ef við snúum okkur að innviðafélaginu þá kom það fram áðan í máli hæstv. ráðherra sem snýr t.d. að Fljótagöngum að ríkið þarf að koma þar að vegna þess að þau standa ekki undir kostnaði hvað varðar veggjöld og það er bara hinn eðlilegasti hlutur. Þar af leiðandi er það og verður þannig næstu áratugi að til þess að styrkja byggð í landinu þurfum við að nota sameiginlega sjóði og gleymum því ekki að verðmætasköpunin verður til úti á landi. Hún verður til úti á landi og það er réttlát skipting að úr sameiginlegum sjóðum sé deilt vítt og breitt um landið. Það er lykilatriði, hvort sem það er í Loftbrú eða til samgönguverkefna eða annars. Innviðafélagið er mjög góð hugmynd en því miður, frú forseti, þá get ég ekki séð í þeirri fjármálaáætlun sem hér er um rætt að fjármunir séu til staðar þegar kemur að innviðafélaginu. Vissulega er tekið fram í frumvarpi sem er til umfjöllunar í þinginu hvernig eigi að standa að því en fjármunirnir liggja ekki fyrir í þeirri fjármálaáætlun sem við ræðum. Ég get ekki séð það.