fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna um landsbyggðina. Ég tek heils hugar undir nánast allt sem hann sagði. Varðandi Loftbrúna þá er það svo, þar sem þetta er prósenta af flugmiðaverði, þá hækka útgjöld ríkisins á hvern miða við hækkun á flugmiðaverði. Það er ekki gott. Það er mikilvægara að hafa fast verð og að það sé óháð hækkun flugfélaganna á miðaverðinu þannig að sem slík er prósentan ekki nógu gott tæki. Eins og ég sagði erum við að skoða þetta og ég vona að við komumst að farsælli lausn til að standa vörð um Loftbrúna. Varðandi þetta millifærslukerfi sem þarf að tala um eins og ég sagði í ræðu minni áðan, og kemur fram í greinargerð um borgarstefnu og Akureyri sem svæðisborg, þá búa 82% af þjóðinni á Hvítár-Hvítársvæðinu, frá Borgarfirði til Selfoss, og svo 8% á Eyjafjarðarsvæðinu. Þar sem hin 10% íbúanna búa verðum við að styrkja byggðirnar með því að greiða fyrir bættum innviðum eins og Fljótagöngum og bættu vegakerfi. Ég tel að íslenskt samfélag hafi gert ákveðin mistök eða kannski ekki mistök en sú þróun að við séum að safnast öll saman á suðvesturhornið er þróun sem átti sér stað ekki út af engu. Hún átti sér stað mikið til út af því að við stóðum ekki nægilegan vörð um að byggja öfluga innviði. Ég þarf ekki annað en að keyra um í Noregi til að sjá öll jarðgöngin þar, þeir eru með hátt í 1.200 jarðgöng, 1.184 jarðgöng þegar ég athugaði það síðast. Þeir hafa öfluga byggðastefnu á vesturströndinni alveg norður eftir og þeir hafa ákveðið að þeir ætli að byggja allt landið, allan Noreg. Við höfum líka ákveðið að við ætlum að byggja allt Ísland og þá verðum við að standa vörð um innviðina okkar og hafa kerfi þar sem 90% eru að borga innviði á landsvæðum þar sem 10% íbúanna búa. Allt samfélagið verður að standa á bak við þetta og ég held að fólk á höfuðborgarsvæðinu sé hliðhollt því að standa vörð um öfluga landsbyggð. Það er öflugt fólk sem vill landsbyggðinni vel sem býr á höfuðborgarsvæðinu (Forseti hringir.) og þannig er það og mun verða áfram. Ég held að það þurfi að styrkja landsbyggðina og það er rétt sem kom fram að það er mikil verðmætasköpun úti á landi og það er gott að búa úti á landi og gott að ala upp börn þar o.s.frv.