fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir umfjöllunina um sína málaflokka og ég ætla að taka undir með hæstv. ráðherra að það er mikilvægt að við höfum skýra framtíðarsýn um hvernig við viljum haga samgöngum á Íslandi og samgönguinnviðum. Ég ætla að lýsa yfir ánægju minni með það að ríkisstjórnin hafi ákveðið að auka svo sannarlega fé til þessara innviða. Það skiptir miklu máli og mikilvægt að vel takist til, svo það sé sagt.
Mig langar til að vera á sömu nótum og hér hefur nokkuð verið um, þ.e. ég er að velta fyrir mér innviðafélaginu. Ég verð að viðurkenna að ég fæ þetta ekki til að ganga upp og er ég þó alveg búinn að leggja á mig að reyna að sjá hvernig við ætlum að leysa þetta. Í mínum huga er þetta þannig að við ætlum að taka þetta út fyrir ríkisreikninginn og við ætlum að vera með félag sem á að annast þá hluti. Það félag verður að hafa einhverjar tekjur. Ef við ætlum að eiga þetta síðan með einhverjum öðrum þá væri skynsamlegt að eiga þetta með einhverjum sem t.d. hafa þekkingu á veghaldi eða þekkingu á því að búa til þessa innviði og eru tilbúnir að taka áhættuna með okkur, auk þess að nýta okkur lífeyrissjóðina. En þá þýðir ekkert að vera að setja inn í þetta félag einhverjar eignir sem eru ekki tekjuberandi. Það er algjörlega augljóst í mínum huga. Það bara þýðir ekkert að vera að velja eitthvað slíkt inn. Þess vegna fæ ég þessa hugmynd ekki til að ganga upp. Ég minni bara á hvernig Hvalfjarðargöngum var hagað og ég er alveg viss um að ef við skoðum þessi erlendu félög sem verið er að tala um þá er það örugglega nákvæmlega sama módelið. Kæmi ekki til greina t.d. að selja t.d. Póstinn og hreinlega nota bara peninginn í þessi félög, selja eitthvað af ríkiseignum og flytja þessar eignir inn í þessi félög þannig að það sé þá úr einhverju að spila?
Ég kem svo kannski betur að öðru hér síðar.