fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi það að það séu dvergar að fara inn í innviðafélagið þá er það svo sannarlega ekki svo. Sundabraut er ekki dvergur, þetta er stærsta samgönguframkvæmd Íslandssögunnar. Þetta mun spara samkvæmt skýrslum og útreikningum akstur á höfuðborgarsvæðinu um 150.000 km á dag. Þetta er þjóðhagslega hagkvæmasta samgöngubót Íslandssögunnar. Þetta mun spara einstaklingi sem vinnur á Akureyri klukkutíma hvora leið.(ÓA: Við vitum það.) Við vitum það líka og þetta kemur fram í greinargerðinni. Hvalfjarðargöng II eru enginn dvergur heldur. Það að fá tekjustreymi af Hornafjarðarfljóti, Ölfusárbrú og Vaðlaheiðargöngum — það er skuldsetningin sem skiptir máli, það er gírunin á innkomunni sem skiptir öllu máli. Ef þú ert með tekjur upp á 500 þús. kr. á mánuði þá geturðu tekið lán sem borgar 500 þús. kr. á mánuði á miklu stærra láni. Það er það sem skiptir máli hérna. Það er alveg augljóst mál að þetta mun verða nýjung í undirbúningi, framkvæmd og rekstri á samgöngumannvirkjum og við erum að horfa til landa eins og Færeyja, Danmerkur og Noregs. Færeyingar lærðu af okkur út af Spalarverkefninu. Stórkostlegt verkefni, ótrúlega flott verkefni og tókst frábærlega. Við erum að reyna að taka keflið aftur upp sem tapaðist eftir þá framkvæmd. Við héldum ekki nægilega vel á spöðunum eftir það og við höfum ekki gert jarðgöng síðan 2022.
Það er alveg rétt að það er mikil verðmætasköpun úti á landi, á landsbyggðinni, og það er gott að búa þar, gott að ala upp börn o.s.frv. Það eru mikil útflutningsverðmæti sem koma þaðan, t.d. frá Fjarðabyggð þaðan sem koma vel yfir 20% af útflutningsverðmætum þjóðarinnar.
Varðandi frumvarpið á morgun þá vil ég leyfa mér að geyma þá umræðu þar til síðar en ég hvet hv. þingmann til að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2024, frá því í hittiðfyrra, (Forseti hringir.) sem segir að þetta 5,3% kerfi sé algerlega staðnað, gjörsamlega staðnað og við verðum að blása nýju lífi í það. (Forseti hringir.) Þessi línuívilnun og rækju- og skelbætur hafa ekki náð markmiðum sínum. Svo er önnur skýrsla sem ég vil benda á, tíminn er því miður búinn, (Forseti hringir.) en árið 2023 kom út skýrslan Auðlindin okkar. Í þeirri skýrslu er lagt til að leggja niður línuívilnun og rækju- og skelbætur. Við erum að fylgja þessum skýrslum.