157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:56]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Forseti. Núna langar mig að ræða við hæstv. ráðherra um ráðdeild og að nýta fjármuni sem best. Það kemur nefnilega fram í þessu plaggi sem við ræðum hérna núna að það er gert ráð fyrir umfangsmikilli fjárfestingu í samgöngum eins og við öll þekkjum. Ég tek einnig eftir því að þarna kemur fram áhersla á að nýta fjármuni sem best. Þetta er á bls. 137. Algjörlega frábært, auðvitað á alltaf að nýta fjármuni sem best á öllum tímum og við öll verkefni og ég fagna þessari áherslu. Þessari áherslu hlýtur ráðherra að ætla að hrinda í framkvæmd, að nýta fjármuni sem best. Tölum þá um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og borgarlínuáform í þessu samhengi en um þessar mundir standa borgarlínuáætlanir í 130 milljörðum og höfum í huga í því samhengi t.d. áætlanir um Fossvogsbrú sem hafa sprungið í loft upp og hafa farið úr 2 milljörðum í 11 eins og málin standa núna. Fossvogsbrú er ekki hönnuð fyrir einkabílinn. Þarna eiga að fara um hjól og gangandi vegfarendur og þessi borgarlína. Miðað við aðrar framkvæmdir sem hafa farið langt fram úr áætlunum eins og t.d. Fossvogsbrúin þá er engin ástæða til að gera ráð fyrir öðru en að þessi upphæð, 130 milljarðar sem nú eru áætlaðir í borgarlínu, verði umtalsvert hærri þegar upp er staðið. Reynslan bara segir okkur það.

Sýnt hefur verið fram á að hægt er að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu fyrir þriðjung af þessari upphæð sem áætluð er í borgarlínu eða fyrir 35 milljarða. Af hverju er þessi hagkvæmari leið ekki farin? Íslenska ríkið getur ekki leyft sér að kasta 130 milljörðum í þessa borgarlínu þegar sýnt hefur verið fram á að hægt er að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu fyrir þriðjung af þessari upphæð, fyrir utan að þetta er veruleg áhætta fyrir ríkissjóð, áhætta sem tekin er af ráðherra eða ráðherrum án aðkomu Alþingis. (Forseti hringir.) Innviðaráðherra segir í fjármálaáætlun að hann ætli að nýta fjármuni sem best. Ætlar ráðherra (Forseti hringir.) að fara eftir sínum eigin orðum, sýna ráðdeild og bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu (Forseti hringir.) fyrir þriðjung af þeirri upphæð sem nú er áætluð í borgarlínu, 35 milljarða í stað 130? — Afsakið, forseti.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.)