fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég talaði ekki um rugl og vitleysu. Ég talaði um að sýna ráðdeild og fara vel með peninga eins og ráðherra hefur sjálfur sett fram í fjármálaáætlun. Ég hef spurt þessara spurninga áður en hef ekki fengið svörin sem ég vil fá. Ég mun spyrja þar til ég fæ svörin sem ég vil fá, það er bara þannig. Borgarlínan er nánast ófjármögnuð og keyrir áfram án aðkomu Alþingis en Alþingi á að redda þessu eftir á með nýjum sköttum og íþyngjandi álögum á fólkið í landinu og þá sem keyra um göturnar. Svo er það þannig að á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis kemur fram að því ráðuneyti er fullkunnugt um ríkjandi óvissu um innheimtu flýti- og umferðargjalda þar sem lagaheimildir til þessarar skattheimtu skorti. Með leyfi forseta:
„Innheimta flýti- og umferðargjalda er ekki í fjármálaáætlun og því er mikil óvissa um endurgreiðslu og þar með veitingu endurlána tengd Betri samgöngum.“
Fjármálaráð segir í álitsgerð sinni um fjármálaáætlun að veruleg fjárhagsleg áhætta geti verið fólgin í endurlánum, einkum þegar endurgreiðsla lána byggir á ótryggum tekjustofnum og þegar ívilnandi lán eru veitt. Það tekur sem dæmi 28 milljarða kr. endurlán til Betri samgangna á næstu fimm árum þar sem endurgreiðsla á að byggja á flýti- og umferðargjöldum sem áætlað er að innheimta á árunum 2030–2040. Eftir tæp 15 ár. Með leyfi forseta:
„Lagaheimildir fyrir slíkri gjaldtöku liggja þó ekki fyrir og gjaldtakan er ekki hluti af fjármálaáætlun. Þetta skapar verulega óvissu um endurgreiðslur og þar með raunverulega áhættu ríkissjóðs.“
Sama með innviðafélagið. Mér finnst þetta ekki boðlegt og raunar óábyrgt ef þessi áform eru ekki endurskoðuð með það að leiðarljósi að nýta fjármuni sem best eins og ráðherra ætlar að gera. Í það minnsta kemur það fram í fjármálaáætlun. Þetta einfaldlega gengur ekki upp og innviðaráðherra ber að skoða hagkvæmari leiðir sem hafa verið settar fram til að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og nýta endurskoðunarákvæði í þessum samgöngusáttmála.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvar er að finna aðkomu Alþingis að samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins? Hvar er að finna aðkomu Alþingis að samgöngusáttmálanum sem er að leggja klyfjar, skuldaklyfjar, á herðar skattborgaranna ef fram fer sem horfir?