157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:12]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætisinngang og hann er með mjög mikilvæga málaflokka. Ég er sammála hæstv. ráðherra um það að húsnæðismálin eru afskaplega mikilvæg fyrir fjölskyldurnar í landinu. Þess vegna olli þessi húsnæðispakki sem kom frá ríkisstjórninni mér miklum vonbrigðum því að hann var fyrst og fremst skattahækkun á leigu. En það er hins vegar áhugavert og í sjálfu sér gott að þetta er væntanlega sá málaflokkur sem langmesti sparnaðurinn er í og það er verið að taka verulega niður stofnframlög til húsnæðismála. Mér sýnist svona frá 2024 að þá sé þetta lækkun á ári um 10 milljarða kr. Ég held að það sé í sjálfu sér gott að því gefnu að menn leggi áherslu á séreignarleiðina. Og af því að hæstv. ráðherra vísar í fyrirhugaðar breytingar spyr ég hvort við séum ekki örugglega að sjá að verið sé að hjálpa fólki við að eignast húsnæði, sérstaklega í ljósi þess að menn eru að draga svona mikið saman varðandi félagslega kerfið.

Síðan er annað sem ég hef miklar áhyggjur af: Það kemur fram að menn ætli að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts þegar kemur að vinnu við húsnæði. Nú hefur það fyrirkomulag gengið mjög vel og er auðvitað besta leiðin. Það er tillaga okkar Sjálfstæðismanna að hækka þetta upp í 100% og það er líka fyrst og fremst út af reynslu og tengist því að auka framboð húsnæðis. Ætli þetta sé að auki ekki besta leiðin til skatteftirlits án þess að fjölga opinberum starfsmönnum til að fylgjast með skattundanskotum og auðvitað hjálpar þetta fólki við að eignast húsnæði. Ég verð því að viðurkenna að það veldur mér miklum vonbrigðum að menn ætli að hætta með þessa endurgreiðslu og ég spyr hæstv. ráðherra af hverju svo sé. Og sömuleiðis, úr því að við sjáum þessa miklu lækkun, þetta fór hæst árið 2024 upp í 32 milljarða en er 22 milljarðar 2028 og enn lægra 2031, spyr ég hvort við séum ekki að sjá aukna áherslu á séreignarstefnuna.