157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:17]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég var ekki að gagnrýna það að verið væri að spara í stofnframlögunum, það er einhver misskilningur. Ég var bara að vekja athygli á því að þetta er eini sparnaðurinn sem maður sér í rauninni í þessari áætlun og hann er umtalsverður. Þetta eru 10 milljarðar á ári, úr 32 milljörðum í 22, það er mikil lækkun. Ég var ekki að gera neinar athugasemdir við það. En það eru fréttir af því að það sé fyrirhugað, án þess að það sé tekið fram í fjármálaáætlun, að auka þarna í aftur. Ég var ekki heldur að tala um hlutdeildarlánin þegar ég var að tala um séreignarstefnuna, enda er það leið sem er nú örugglega betri en margar en gengur samt sem áður út á það, ef ég man það rétt, að ríkið eigi þá íbúðirnar með fjölskyldunum.

Ég var hins vegar að spyrjast fyrir um það af hverju verið væri að hætta með endurgreiðslu á vaskinum. Nú liggur það alveg fyrir að þetta hefur gengið mjög vel og menn geta ekki bæði sagt að þeir ætli að ýta undir það að hér sé ódýrara húsnæði, ýta undir framboð á húsnæði og hjálpa fjölskyldunum í landinu að eignast húsnæði, og ganga svo í þessa aðgerð sem hefur reynst svona vel. Ég myndi nú ætla að það ætti að vera góð pólitísk samstaða, að því gefnu að menn vilji leggja áherslu á, og ég hrósaði hæstv. ráðherra fyrir þá áherslu hér áðan, að húsnæðismálin séu svo mikilvæg, sem þau eru, fyrir fjölskyldurnar í landinu. Það er þá í hróplegu ósamræmi að afnema endurgreiðsluna og í rauninni ættum við að auka hana. Það er tillaga okkar Sjálfstæðismanna, og við getum vísað í reynslu sögunnar, að endurgreiðslan verði aukin enda margborgar það sig fyrir okkur öll og ekki síst fyrir fjölskyldurnar í landinu.