157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:26]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir svörin. Það er mjög mikilvægt að tryggja nægt framboð af fjölbreyttu húsnæði og þá þannig að stöðugleiki sé tryggður á fasteignamarkaði. Þetta er gríðarlega mikilvægt og ég fagna því svo sannarlega að hér sé verið að stíga enn stærri skref hvað þetta varðar. Það hefur verið mikil og góð lífsreynsla hjá mér að fylgjast með því á síðustu tíu árum þegar sett voru lög um almenna íbúðakerfið á grunni þess sem lagt var til á vegum Alþýðusambands Íslands, en í kjölfarið er búið að byggja töluverðan fjölda íbúða; að sjá með eigin augum hversu mikilvægt það er fyrir fólk með lægri tekjur að komast í öruggt húsnæði þar sem leiga er lág og stöðug. Hlutdeildarlánin hafa verið afar mikilvæg viðbót við þá flóru sem er í boði. Ég man vel eftir því þegar hæstv. ráðherra, þá formaður VR, fór erlendis til að læra af frændum okkar varðandi uppbyggingu hlutdeildarlánakerfisins. Í þessu kerfi er fólki auðvitað veitt þetta svigrúm til að fjárfesta í íbúð með stuðningi hins opinbera til afmarkaðs tíma og þannig hagnast ríkið sem og einstaklingurinn hvað best. Það hentar svo sannarlega ekki öllum að skuldsetja sig upp í rjáfur til að hafa þak yfir höfuðið. Það þarf að hafa fjölbreytta möguleika þannig að þetta sé með þeim hætti að mikil skuldsetning sé ekki eina leiðin til að búa við öruggar aðstæður. Fjölbreyttar leiðir eru að sjálfsögðu mikilvægar og hvet ég hæstv. ráðherra til dáða fram á við.