fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aðra góða spurningu. Okkar verkefni núna er auðvitað að tryggja nægt lóðaframboð fyrir uppbyggingu íbúða í almenna íbúðakerfinu, sem hefur í sjálfu sér gengið vonum framar. Þetta er auðvitað ekki stór hluti af markaðnum, það eru aðeins tæplega 1.100 íbúðir sem hafa verið byggðar inn í Bjarg íbúðafélag. Í samhengi við stærð markaðarins hefur hlutfall af félagslegu eða óhagnaðardrifnu húsnæði farið ört lækkandi en hefur aðeins tekið við sér eftir að lög um almennar íbúðir urðu að veruleika. Þetta hlutfall fór mjög lækkandi eftir að verkamannabústaðakerfið var lagt niður. Það sem við getum boðið fólki sem hefur ekki burði til að fara inn á séreignarmarkaðinn eða leigja á opnum markaði, sem er ansi skrautlegur, svo að vægt sé til orða tekið — þarna erum við að tryggja fólki allt að 40% lægri leigu en markaðurinn. Við erum að tryggja fólki 100% búsetuöryggi og við erum að tryggja fólki 100% fyrirsjáanleika. Þetta er auðvitað það sem málið snýst um, þ.e. framfærsluöryggið og fyrirsjáanleikinn. Það er rétt hjá hv. þingmanni að ég var í hópnum sem kom að gerð hlutdeildarlána. Við vorum líka að skoða fleiri búsetuform og höfum litið til Obos í Noregi og fleiri búsetuforma sem eru ekki endilega félagsleg eða slíkt, en hjálpa fólki á sanngjarnan hátt að komast inn á markaðinn og eignast húsnæði á þeim hraða sem það kýs. Það eru því mörg tækifæri til sóknar í þessum málaflokki, bæði fyrir fólk að komast í eigið húsnæði og sömuleiðis líka í uppbyggingu á óhagnaðardrifnu félagslegu húsnæði.