fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég er mikil áhugamanneskja um að stytta bið eftir hjúkrunarrýmum en það eru litlar upplýsingar um fjölda nýrra rýma í þessari fjármálaáætlun. Ég varð hins vegar glöð að sjá fréttir um að það yrðu engir biðlistar árið 2029 miðað við nýja framkvæmdaáætlun. Raunveruleikinn er hins vegar sá að ef skriflegt svar til mín frá ráðherra er borið saman við framkvæmdaáætlunina má finna út að 1.674 aðilar gætu verið á biðlista árið 2029. Að auki verða um 200 aðilar vistaðar í biðrými. Það sem skýrir mismuninn er að tölur í nýrri framkvæmdaáætlun byggjast á markmiðum stjórnvalda þess efnis að 75% einstaklinga með samþykkt færni- og heilsumat fá hjúkrunarrými innan 90 daga. Því spyr ég ráðherra: Af hverju þessi blekking, að segja að það sé enginn biðlisti? Og af hverju er ekki markmiðið að enginn með samþykkt færni- og heilsumat verði á biðlista lengur en 90 daga, alla vega að tölur verði birtar miðað við raunveruleikann? Svo rímar svar við fyrirspurn minni um fjölgun hjúkrunarrýma ekki við áætlun ráðherra um uppbyggingu hjúkrunarrýma. Það munar 54 rýmum á þessu ári og 606 rýmum á næstu fjórum árum. Er framkvæmdaáætlun rétt eða hvað verða byggð mörg rými annars vegar á þessu ári og hins vegar á tímabili fjármálaáætlunarinnar?