157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:43]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vona svo innilega að farsæl lausn náist í þessu máli í Borgarfirði vegna þess að ég held að þetta sé mjög fordæmisgefandi fyrir önnur sveitarfélög og önnur sambærileg verkefni sem munu lenda á okkar borði. Það skiptir máli að við leysum það verkefni farsællega fyrir það ágæta sveitarfélag.

Það sem mig langar hins vegar að spyrja um í síðara andsvari eru húsnæðis- og skipulagsmál. Samkvæmt frumvarpinu eru þau að lækka úr 26 milljörðum í 21,7, sem er nú kannski ekki alveg í takt við þau fyrirheit ríkisstjórnarinnar að fara í að fjölga húsnæðiskostum og slá þar með á þenslu á húsnæðismarkaði með því að auka í á framboðshliðinni sem hefur nú verið einn stærsti drifkraftur verðbólgunnar síðustu ár. Mér finnst þetta sérstakt en þarna á að fella niður tímabundna aukningu stofnframlaga á árinu 2028. Spurningin er þá í raun og veru bara hvort ráðherrann telji að núna á þessu ári, 2026, í því vaxtaumhverfi sem við erum, og því næsta — ef maður skoðar bara þessa bók þá er alveg ljóst að við erum ekki komin á þann stað sem menn ætluðu sér varðandi verðbólgu og vexti — verði bara hægt að byggja nægilega mikið og þar með sé ekki lengur þörf á þessum sérstöku aðgerðum sem ráðist var í með aukningu stofnframlaga ríkisins til að ýta undir framboðshlið markaðarins. Mér finnst einfaldlega forsendur hafa breyst miðað við hagtölur og stöðuna í efnahagsmálum, þannig að ég spyr hæstv. ráðherra hvort það komi ekki til greina, af því að þetta hefur reynst vel, að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði í ljósi efnahagsaðstæðna.