fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Í umsögn fjármálaráðs um fjármálaáætlun má m.a. lesa mjög harðorð ummæli og umsögn um tengingu bóta við launavísitölu og, með leyfi forseta, segir m.a. í umsögn fjármálaráðs:
„Þetta er lögbundin og sjálfvirk skuldbinding sem nær yfir um 15% af heildarútgjöldum ríkissjóðs sem stjórnvöld munu nú ekki geta vikið frá án þess að breyta lögum.“
Ég endurtek: 15% af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Fjármálaráð heldur áfram, með leyfi forseta: „Í ljósi reynslu annarra þjóða sætir það furðu að slíkt kerfi sé tekið upp hér nú.“ Og áfram heldur fjármálaráð:
„Upplýsingar úr skattframtölum benda til þess að yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að kjaragliðnun hafi átt sér stað á milli launa og lífeyris séu ekki á rökum reistar. Kjör ellilífeyris- og örorkuþega hafa ekki gliðnað frá kjörum vinnandi fólks, þvert á móti hafa ráðstöfunartekjur þeirra sem þiggja ellilífeyri eða fulla örorku vaxið hraðar en ráðstöfunartekjur þeirra sem vinna.“
Því veltir maður fyrir sér að hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir kosningar að það væri bannað að plata. Hér var því haldið fram að það væri kjaragliðnun á milli þessara hópa en þegar kemur í ljós að fyrrnefndi hópurinn hefur fengið meiri kjarabætur heldur en vinnandi fólk þá er verið að ljúga að fólki. Í besta falli er verið að blekkja fólk.