157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:55]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Þetta eru stórar spurningar og ég þarf að hafa mig allan við að svara þeim. En ef við komum aftur að launavísitölutengingunni þá er í lagi að hafa þá skoðun að taka eingöngu álit þeirra sem hafa talað gegn þessari tengingu en virða að vettugi álit þeirra sem hafa t.d. talað fyrir því að þetta sé í fullkomnu samræmi við það sem ætti að gera best til að bæta kjör eða draga úr þeirri kjaragliðnun sem hefur átt sér stað undanfarin ár og áratugi. Þar má nefna Gylfa Magnússon, Þórólf Matthíasson, Stefán Ólafsson og fleiri, en við erum kannski sammála um það, ég og hv. þingmaður, að vísa í mismunandi sérfræðinga. Svo auðvitað kom í ljós, eins og hjá Læknafélaginu, að þegar Læknafélagið gagnrýndi þessa leið þá byggðist gagnrýnin helst og nær eingöngu á þeim breytingum sem voru gerðar á örorkulífeyriskerfinu og samþykktar í tíð fyrri ríkisstjórnar . Það var megininntakið í gagnrýninni og sömuleiðis líka Seðlabankans sem virtist ekki hafa kynnt sér greinargerð frumvarpsins [Kliður í þingsal.] þannig að mikið af þeirri gagnrýni sem hefur komið fram hefur verið á misskilningi byggð.

Varðandi vinnumarkaðinn, og vonandi leggur hv. þingmaður við hlustir núna, þá byggir norræna módelið á trausti fyrst og síðast. Verkalýðshreyfingin hefur og gerði það í kjarasamningunum 2024, samdi með ábyrgum og hóflegum hætti og lagði traust sitt á atvinnulífið. Norræna módelið byggir á ákveðnu fyrirkomulagi. Það er auðvitað mismunandi á milli landa. Það er meira af fyrirtækjasamningum í Svíþjóð o.s.frv. Hv. þingmaður ætti að þekkja þetta allt saman mjög vel. En svo virðist sem atvinnulífið og fyrirtækin hafi ekki lagt sitt af mörkum og fyrir því er hægt að færa ýmis rök, (Gripið fram í.) við getum farið farið betur yfir það, og hið opinbera að einhverju leyti líka, ég tek undir það.