fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu. Þetta er einn af þeim mikilvægu málaflokkum sem standa mér mjög nærri, þ.e. uppbygging á landsbyggðinni. Ég get alveg tekið undir það með þingmanni og þekki það, hafandi komið að uppbyggingu á landsbyggðinni í gegnum félög verkalýðshreyfingarinnar, að þar eru áskoranirnar allt aðrar en á höfuðborgarsvæðinu og í þéttari kjörnum landsbyggðarinnar. Það sem við höfum verið að vinna í og höfum ekki náð að kynna enn þá en munum vonandi ná að gera mjög fljótlega, er sérstakt átak í þessum efnum. Það felst í því að efla þau félög sem eru inni í HMS sem heita Brák og Bríet og var annað félagið stofnað utan um uppbyggingu í brothættari byggðum eða á kaldari svæðum eins og það er stundum kallað. Og ekki bara það heldur höfum við líka verið að ræða mun nánara samstarf ólíkra aðila. Við erum með fullt af félögum, eins og Bjarg sem hefur komið hér fram, sveitarfélögin sjálf, sem geta kannski gert eitthvað, félagsbústaði, Búseta og fleiri félög. Við höfum verið að vinna lausnir sem við höfum nú þegar byggt á, eins og verkefni sem Bjarg byggði upp á Húsavík, smærri eða færri íbúðir sem eiga að henta kaldari svæðum og uppbyggingu og enn þá betra ef það koma fleiri aðilar að slíkri uppbyggingu, bæði inn í hlutdeildarlánakerfið, mögulega til kaups. En helsta áskorunin þarna hefur líka verið hagkvæmnin, hvernig við getum gert þetta þannig að við séum ekki að byggja með byggingarkostnaði sem er langt langt (Forseti hringir.) umfram fasteignamat húsa. Ég vona að ég geti fullyrt að það séu bjartari tímar fram undan þar og ég tek þessa uppbyggingu á landsbyggðinni mjög alvarlega.