fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans svar og fagna mjög þeim áhuga sem hann hefur á þessum áskorunum sem eru víða, sérstaklega í minni byggðarlögum. Ég hlakka til að sjá sjá hann koma fram með þessar lausnir því það er bagalegt að heyra af því að það séu jafnvel ungar barnafjölskyldur sem langar mjög mikið til að flytja til minni byggðarlaga og byggja þar upp atvinnulíf o.s.frv. en það er ekki virkur markaður til staðar. Þau væru til í að byggja en það er ekki hægt að fá fjármagn fyrir því og fasteignamatið er náttúrlega niðri. Væntanlega, með meira lífi í bænum, myndu skapast þannig aðstæður að fasteignamatið lyftist en það gerist ekki af því að fólk getur ekki byggt, þannig að ég hvet ráðherra til dáða við að leysa þennan hnút.
Annað sem ég vildi fá að spyrja örsnöggt um í þessu seinna andsvari er það sem kemur annars staðar fram í fjármálaáætlun, nánar tiltekið á bls. 59, undir greinargerð um málefnasvið hæstv. ráðherra, varðandi fjárfestingar í innviðum. Þar er fangelsið að Stóra-Hrauni talið upp, sem er á fyrra tímabili áætlunarinnar, en þar er líka minnst á öryggisvistun fyrir fullorðna sem heyrir undir málefnasvið hæstv. ráðherra að ég best veit. Ég vildi spyrja: Er nokkur hætta á því samhliða þessari uppbyggingu á nýju öryggisvistunarúrræði verði því öryggisvistunarúrræði sem er til staðar í dag á Akureyri lokað? Ég vildi jafnframt fá að spyrja ráðherra út í það í minni seinni lotu hér.