fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég hygg nú að við séum komin að lokum þessarar umræðu. Það er ýmislegt sem er hægt að taka saman af því sem hér hefur farið fram. Það er auðvitað ekkert leyndarmál að það eru mikil vonbrigði að hæstv. fjármálaráðherra hafi tekið jafn lítinn þátt í umræðunni og raun ber vitni. Það er orðinn plagsiður hjá þessari ríkisstjórn að hæstv. ráðherrar, ekki síst hæstv. fjármálaráðherra, treysta sér ekki til að fylgja eftir sínum eigin málum í umræðum í þinginu.
Það sem stendur auðvitað upp úr er álitsgerð fjármálaráðs. Fjármálaáætlun er eitt af þeim tækjum sem ríkisvaldið hefur til þess að vera með styrka efnahagsstjórn. Í þessu tilfelli, þ.e. á þessum tímapunkti, er ótrúlega mikilvægt að ríkisstjórnin gefi þau skilaboð að hún ætli að ganga þannig fram að hér verði sem minnstar líkur á því að hér verði mikil verðbólga og það er gert með ábyrgri fjármálaáætlun. Fjármálaráð er ráð sérfræðinga, lögbundið ráð, sem á að rýna þessa áætlun. Fyrir helgi kom það með sína álitsgerð og hún er nokkuð sem ég hvet alla til að kynna sér vegna þess að hún er vel upp sett, skýr, greinargóð en mjög gagnrýnin á þessa áætlun. Það veldur gríðarlegum vonbrigðum og miklum áhyggjum að heyra viðbrögð hæstv. ráðherra og sannarlega hæstv. fjármálaráðherra sem í umræðum hér gerði ekkert með þessar ábendingar. Það eina sem hæstv. forsætisráðherra hafði um málið að segja var að það er komin ný söguskýring. Nú hefur fyrri stjórnvöldum, fyrri ríkisstjórn, verið legið á hálsi fyrir að hafa staðið að kjaragliðnun. Fjármálaráð bendir á að svo sé ekki. Þá er það svar hæstv. forsætisráðherra, sem kom fram hér í orðaskiptum hæstv. forsætisráðherra við aðra hv. þingmenn, að núna sé sú löggjöf, sem er hvað harðast gagnrýnd af fjármálaráði, til komin vegna þess að síðasta ríkisstjórn og Sjálfstæðisflokkurinn bættu svo mikið í kjör öryrkja og aldraða að það verði að setja sérstaklega lagasetningu til að treysta því að það verði áfram sjálfkrafa. Síðan kemur hæstv. félagsmálaráðherra og segir að það hafi orðið gríðarlega mikil kjaragliðnun.
Auðvitað rekst hér hvað á annars horn en aðalatriðið er þetta: Allt þetta fyrirkomulag sem við erum búin að setja upp er ekki út af ekki neinu. Þetta er ekki til að eyða tíma og peningum fólks. Fjármálaráð á að koma með rýni, ábendingar. Það er með 14 ábendingar hér í kaflanum Helstu ábendingar og ályktanir, en þær eru fleiri í álitsgerðinni sjálfri. Því er vissulega hrósað, og því ber að halda til haga og engin ástæða til annars, að það er gert ráð fyrir því að að það verði hallalaus fjárlög á hverju ári á tímabili áætlunarinnar. Það er að vísu næfurþunnt og bara yfirlýsingar hæstv. félagsmálaráðherra hér fyrir nokkrum mínútum eru búnar að sprengja næsta ár vegna þess að þar er gert ráð fyrir 0,06% afgangi eða um 1 milljarði. En látum það liggja milli hluta. Því er hrósað. En síðan er verið að fara yfir það — ég ætla ekki að lesa það, ég gerði það í minni fyrri ræðu. Ég get ekki gert það aftur í svona stuttri ræðu vegna þess að þetta er svo langur texti. Þetta eru 14 mjög alvarlegar ábendingar. Það er verið að vísa til þess að nú sé búið að festa reglu í lög sem gerir hagstjórnina mjög erfiða vegna þess að þetta, í hið minnsta, gerir það að verkum að 15% af ríkisútgjöldum verða á sjálfstýringu. Og aftur bendi ég á að ef einhver heldur að þetta snúist um að menn vilji ekki gera vel við þá sem eru á bótum en þurfa á bótum að halda þá er það fullkominn misskilningur. Það er reyndar þannig, virðulegi forseti, að hæstv. forsætisráðherra var að benda á hið augljósa; það var mjög bætt í þetta á síðasta kjörtímabili og reyndar líka þarsíðast. En það er augljóst að ef menn vilja bæta hag þeirra sem eru á bótum þá ættu menn að gera það með sértækari leiðum og bæta sérstaklega við hjá þeim sem minnst hafa. En þetta er, eins og fjármálaráð bendir á, kerfisbreyting sem nær yfir alla þætti.
Það er ýmislegt annað sem hér kemur fram sem við höfum kannski lítið rætt. Við fengum góða innsýn og mjög góðan fund með fjármálaráði í hv. fjárlaganefnd í morgun. Það var alla vega mín upplifun að það hafi verið einstaklega góður fundur; málefnaleg umræða frá öllum aðilum, bæði hv. þingmönnum stjórnar og stjórnarandstöðu sem og fjármálaráði. Ég var að vona það, virðulegi forseti, vegna þess að til þess er leikurinn gerður, að við værum hér að ræða þessar niðurstöður fjármálaráðs og hvernig við ætlum að koma til móts við þær. Það sem fjármálaráð er að segja er einfaldlega þetta: Þetta plagg, þessi áætlun, er ekki til þess gerð að slá á verðbólguvæntingar. Nú hefur það verið, alla vega í orði kveðnu, og ég trúi því, samstaða meðal allra hv. þingmanna um að vilja ná tökum á verðbólgunni sem því miður hefur ekki tekist, m.a. út af hagstjórnarmistökum núverandi ríkisstjórnar. En þetta plagg á að vera tækið til þess að ná böndum á efnahagsstjórninni og ná tökum á verðbólgunni. En við gerum það ekki nema að taka alvarlega þær ábendingar sem koma fram hjá sérfræðingum. Ef einhver heldur að þetta sé séríslensk leið þá er það fullkominn misskilningur.
Lögin um opinber fjármál voru tíu ár í undirbúningi; allir flokkar komu að því, allir helstu sérfræðingar landsins og líka helstu sérfræðingar fyrir utan landsteinana. Því miður fór ríkisstjórnin þá leið að byrja að brjóta lögin um opinber fjármál. Við höfum rætt það, því verður ekki breytt. Núna erum við á þessum stað: Það er komin fjármálaáætlun, fjármálaráð er búið að rýna hana, er með mjög harða gagnrýni á hana og viðbrögð ríkisstjórnarinnar eru: Okkur er alveg sama. Hvað þýðir það? Það þýðir að þessi fjármálaáætlun mun gera lítið og miðað við álit fjármálaráðs illt verra. Ég hef fylgst með nokkurn veginn allri umræðunni og tekið þátt í henni. Mér finnst algerlega fyrir neðan allar hellur að hæstv. fjármálaráðherra taki ekki þátt í henni. Það er bara hlutverk ráðherra að fylgja eftir sínum málum og hér er ekki um neitt smámál að ræða. En við erum búin að taka fyrir á síðustu dögum skrýtin mál — eða kannski ekki skrýtin mál, þetta er auðvitað ekkert skrýtið mál og mér fannst margt gott í fjármálaáætlun eins og svo mörgu öðru. Síðan vorum við sömuleiðis með ágætismál að því leytinu til að það var verið að lækka vask á eldsneyti, þó að maður vilji gera betur og annað slíkt þá er það í eðli sínu gott, en þá fór ríkisstjórnin þá leið að endurvekja gamaldags verðlagseftirlit. Ekki tók hæstv. ráðherra þátt í þeirri umræðu heldur.
Virðulegi forseti. Ég vonast til þess að starfið í hv. fjárlaganefnd verði þannig að við komum til móts við þau sjónarmið sem koma fram hjá fjármálaráði. Þessi álitsgerð er ekki frá stjórnarandstöðunni, hún er ekki frá Sjálfstæðisflokknum, (Forseti hringir.) hún er ekki frá hagsmunaaðilum úti í bæ, hún er frá þeim sérfræðingum sem hafa það lögbundna hlutverk (Forseti hringir.) að rýna fjármálaáætlun og koma með ábendingar. Ég vonast til þess og treysti því, virðulegur forseti, að við munum fara í gegnum hana og koma til móts við þessar alvarlegu athugasemdir.