157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:22]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Við höfum nú rætt fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 í tvo daga. Umræðan hefur nánast undantekningarlaust verið málefnaleg, áhugaverð og góð. Fagráðherrar hafa gert grein fyrir sínum málefnasviðum og átt orðastað við þingmenn. Það er óhætt að segja að fjármál ríkisins séu grundvallaratriði í störfum löggjafarþingsins og mikilvægar umræður sem fara fram. Fjármálaáætlun 2027–2031 er áætlun til 5 ára um tekjur og útgjöld ríkisins. Hún setur ramma um hagstjórn okkar á tímabilinu og skilgreinir hvernig við tryggjum stöðugleika og sjálfbæran hagvöxt. Markmið hennar er einfalt: Að byggja upp stöðugt hagkerfi þar sem lífskjör batna á grundvelli raunverulegrar verðmætasköpunar, ekki skammtímalausna.

Á liðnum árum hefur hagkerfið okkar vaxið hægt. Því þarf að byggja vöxt á umbótum, framleiðni og ábyrgum ríkisfjármálum sem styðja við peningastefnu Seðlabankans eða öllu heldur að samspil fjármálastefnu og peningastefnu sé rétt. Fjármálaáætlunin sem við ræðum nú boðar aðhald í fjármálum ríkisins og það er nauðsynlegt í því umhverfi sem við stöndum frammi fyrir en umhverfið hefur breyst til hins verra að undanförnu. Vextir eru hærri, hagvaxtargeta minni og óvissa meiri. Verðbólga hefur verið þrálát og baráttan við hana flókin. Í slíku umhverfi verður ríkissjóður okkar að vera traustur til að halda niðri vöxtum og verja heimilin og fyrirtækin. Áætlunin markar skýr tímamót. Gert er ráð fyrir að stöðva hallarekstur ríkissjóðs árið 2027 og að skuldir okkar taki að lækka markvisst. Samkvæmt þingsályktunartillögunni sem við ræðum hér er samanlagður halli frá 2019 um 830 milljarðar kr. og afar mikilvægt að skuldasöfnun hætti. Ábyrg ríkisfjármál eru lykilforsenda lægri vaxta og stöðugleika fyrir okkur öll. Þó að boðað sé aðhald í fjármálaáætluninni er ekki verið að boða niðurskurð í hefðbundnum skilningi. Það verður forgangsraðað og útgjaldavöxtur takmarkaður. Áherslan er að halda aftur af útgjaldavexti og tryggja að opinbert fé nýtist þar sem það skilar mestum árangri.

Frú forseti. Hagvöxt má mæla á nokkra vegu; heildarhagvöxt, hagvöxt per mann og hagvöxt fyrir vinnustund. Þrátt fyrir að hagvöxtur í heild hér á landi hafi verið í takt við spár er ekki það sama að segja um hagvöxt per mann. Ástæður þess að hagvöxtur per mann hefur verið veikur eru sjálfsagt nokkrar en ein ástæðan er sú að fólki hefur fjölgað hratt án þess að verðmætasköpun hafi aukist í sama mæli. Hagkerfi okkar er sem sagt vaxið en ávinningurinn á hvern íbúa hefur verið takmarkaður. Það sem þarf að breytast er að framleiðni vinnuafls aukist svo og fjárfesting í tækni og menntun; skilvirkara regluverk, meiri orkuöflun og betri nýting fjármagns. Þetta eru lykilatriði í að auka hagvöxt.

Ábyrg ríkisfjármál styðja við lægra vaxtastig og lægri vextir þýða lægri greiðslubyrði fyrir heimilin sem skulda, meiri stöðugleika og betri forsendur fyrir bættum lífskjörum. Hvernig má það vera að kaupmáttur hafi vaxið of hratt? Ein ástæðan er sú að launahækkanir hafi verið umfram framleiðnivöxt samfélagsins og sett verðbólgumarkmið. Að hluta hefur aukinn kaupmáttur verið fjármagnaður með hallarekstri ríkissjóðs, þ.e. fjármagnaðar með lántöku. Þetta er ekki sjálfbær leið og leiðir til verðbólguþrýstings. Hvað varðar tekjuöflun ríkisins er gert ráð fyrir að jafnvægi verði komið á ríkisfjármálum með því að snúa viðvarandi halla í afgang en vöxtur tekna verður lægri en vöxtur landsframleiðslu. Hlutfall skatttekna mun í raun fara úr 30,4% árið 2027 niður í 30% árið 2031 að teknu tilliti til vergrar landsframleiðslu. Gert er ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs hækki en að skuldahlutfallið lækki. Skuldahlutföllin sýna skuldir ríkissjóðs og hins opinbera í heild miðað við verga landsframleiðslu. Það að skuldahlutfallið fari lækkandi samhliða aukinni lántöku þýðir að áætlun um skuldaaukningu er lægri en áætlun um aukinn hagvöxt á tímabilinu. Gert er ráð fyrir að fækka stöðum hjá ríkinu árið 2027. Uppsögnum verður þó ekki beitt heldur verður markmiði um 1% fækkun ríkisstarfsmanna náð með starfsmannaveltu og hagræðingu. Starfsfólk ríkisins er ein verðmætasta auðlind okkar. Stöðugildum hefur fjölgað um tæp 20% frá 2019, ef marka má þingsályktunartillöguna sem við erum að ræða, á sama tíma og uppsafnaður halli ríkissjóðs er um 830 milljarðar kr. Við verðum að staldra við og skoða hvort við getum komið á umbótum og hagrætt án þess að það komi niður á þjónustu. Þegar starfsfólki fjölgar hratt þarf að huga að því hvort þörf sé fyrir alla þá fjölgun þegar frá líður. Áfram er gert ráð fyrir hagræðingu í ríkisrekstrinum með sameiningu stofnana en þess gætt að þjónustan skerðist ekki og verði jafnvel aukin og gerð aðgengilegri með stafrænum lausnum.

Frú forseti. Fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 er metnaðarfull. Markmið hennar er einfalt: Að byggja upp stöðugt hagkerfi þar sem lífskjör batna á grundvelli raunverulegrar verðmætasköpunar.

Mig langar aðeins í lokin, þó að ég sé hér búinn með skrifaðan texta, að fjalla örlítið um álitsgerð fjármálaráðs. Ég tek undir með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni að það er gott að lesa álitsgerðina og hún er augljóslega skrifuð af fólki sem veit hvað það er að segja, er vel menntað og setur fram sitt mál með skiljanlegum og góðum hætti. Í þeirri áætlun er bent á það sem betur má fara. Ég reikna með að almennt séð séu álitsgerðir sem þessar yfirleitt að benda á það sem betur má fara. Þess vegna kemur kannski meira til í álitsgerðinni heldur en það sem kannski er gott eða stendur út úr. Þó er bent á að það að ná hallalausum fjárlögum sé metnaðarfullt og gott markmið. Það er líka bent á að það sé ekki markmið sem getur staðið eitt og sér og það er það sem þessi áætlun gengur auðvitað út á, þ.e. að búa þannig um hnútana að ekkert eitt markmið sé það sem færi okkur lausn sem gildi fyrir alla.

Það kemur fram í þingsályktunartillögunni og fjármálaáætluninni að frumjöfnuður árið 2027, til samanburðar við þennan 1,1 milljarð sem stendur út af þegar er búið að greiða vexti, sé 90,7 milljarðar. Frumjöfnuður er auðvitað kennitala sem skiptir verulegu máli vegna þess að þar kemur fram hver framlegð rekstursins er áður en við byrjum að borga af öllum lánunum. Ég held að það sé áhugavert að átta sig á því að þegar við hugsum um frumjöfnuðinn þá hafa skuldir verið greiddar niður. Mér detta í hug tvö atriði: Það var greitt niður með afrakstri sölu Íslandsbanka og það var greitt niður með skatttekjum sem fengust af sölu Kerecis. Þar höfum við náð árangri og þessi tala væri sennilega enn verri ef það hefði ekki verið gert, þá værum við að borga enn meiri vexti.

Alveg í lokin, ég á ekki nema rétt rúma mínútu eftir af tíma mínum, vil ég segja þetta: Meiri og minni hluti hér á þinginu eru sjálfsagt ekki oft sammála um það hvort svona áætlanir séu góðar eða ekki. Ég held að það skipti máli samt sem áður að við horfum með augum hvors annars á áætlunina; við sem erum í meiri hlutanum horfum á hvað það er sem má betur fara, horfum á það hvað sé hugsanlega hægt að gera betur, hvernig hægt er að gera eitthvað sem er bærilegt enn betra. Það má þá höfða til minni hlutans um það að horfa á áætlunina og sjá hvort það séu kannski ekki einhverjir ljósir punktar þar.