157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

lögfesting réttar til leikskólapláss.

[10:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í þann gjörning sem þjóðin varð vitni að í Kópavogi um síðustu helgi. Þar kynnti formaður Samfylkingarinnar, undir merkjum ábyrgðar og stórra fyrirheita, kostnaðarsamt loforð um brúun bilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla. Á vefsíðu Samfylkingarinnar er þetta kynnt eins og um raunverulegar og fjármagnaðar aðgerðir sé að ræða sem komi til framkvæmda í skrefum á næstu árum. Það stangast á við orð hæstv. fjármálaráðherra í Morgunblaðinu í gær sem sagði skýrt að ekki væri gert ráð fyrir þessum útgjöldum í fjármálaáætlun ríkisins. Við höfum jafnframt heyrt að hæstv. ráðherra málaflokksins lýsir því yfir að Flokkur fólksins sé ekki með sömu stefnu og Samfylkingin í þessum efnum. Þá vakna upp spurningar: Upplýsti forsætisráðherra ríkisstjórnina um þetta tiltekna kosningaloforð áður en hún kynnti það opinberlega í Kópavogi? Og þá á ég ekki við kynningu á skýrslu aðgerðahóps um að brúa bilið heldur þetta nákvæma loforð og þessa tilteknu útfærslu. Hvar á að finna þessa sirka 15 milljarða kr. sem þetta mun kosta ef peningarnir eru ekki í fjármálaáætlun? Er þetta stefna ríkisstjórnarinnar eða aðeins stefna Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningum? Finnst hæstv. forsætisráðherra eðlilegt að lofa 15 milljarða útgjöldum þegar hæstv. fjármálaráðherra segir daginn eftir að ekki sé gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun?