157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

lögfesting réttar til leikskólapláss.

[10:33]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir að vekja athygli á útspili Samfylkingarinnar. Við höfum samstillt okkur sem flokkur í heild sinni fyrir sveitarstjórnarkosningar. Og já, ég er forsætisráðherra en ég er líka formaður Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands og Samfylkingin hefur haft það á stefnuskrá sinni í langan tíma að vilja lögfesta rétt til leikskólavistar. Það kom út, m.a. fyrir tilstilli vinnu sem hófst áður en ég tók við sem forsætisráðherra, og var birt og kynnt fyrir ríkisstjórn m.a. — Fyrirgefðu, forseti, klukkan?

(Forseti (ÞSv): Við erum að reyna að ráða við klukkuna en forsætisráðherra fær sínar tvær mínútur.)

Gott mál, ég sé það. Við fengum kynningu á þessari skýrslu í ríkisstjórn. Það lá alveg fyrir að ég var ánægð með niðurstöður þessarar skýrslu. Ég er hlynnt því að ríkið komi með einhverjum hætti að leikskólamálum í landinu alveg eins og það gerir í grunnskólamálum, alveg eins og er gert á öllum öðrum Norðurlöndum. Hvað varðar útgjöld þá hef ég heyrt hér þessa umræðu um 15 milljarða. Fyrir það fyrsta þá veit ég ekki hvaðan sú tala kemur. Í þessari skýrslu sem allir geta flett upp og er öllum opinber kemur fram að kostnaður við það að brúa þetta bil gæti verið 10 milljarðar. Þetta er nettókostnaður mögulega sveitarfélaga en það er líka ábati sem felst í því að ráðast í þetta, m.a. vegna þess að fólk missir síður úr vinnu, það eru tekjur til heimilanna, það eru meiri umsvif hjá fyrirtækjum og það eru auknar skatttekjur hjá hinu opinbera. Og ég trúi því eiginlega ekki að fólk hér inni í alvöru talað sé ekki sammála því að við eigum að fara í þessa vegferð. Ég hef lýst því yfir að ég styð það. Ég hef lýst því yfir að ég mun tala fyrir þessu máli, já, í ríkisstjórn en það er til einskis ef við erum ekki með sveitarstjórnarfulltrúa sem styðja þessa vegferð því að það þarf tvo til. Það þarf oddvita og kjörna lista í sveitarfélögum sem tala fyrir þessu máli, sem vilja setjast niður við samningaborðið við ríkið, vilja styrkja þjónustu við barnafjölskyldur í landinu. Við erum komin allt of langt fram úr okkur ef við getum ekki lengur sett markið hátt, reynt að bæta þjónustu við fjölskyldur landsins.

Það liggur alveg fyrir að þetta hefur lengi verið stefna Samfylkingarinnar, ég mun tala máli þess, en það er algjörlega gagnslaust ef inn í sveitarfélögin kemur fólk sem styður ekki að við styrkjum fjármögnun leikskólanna og förum leið Norðurlandanna. Ég er stolt af þessu útspili. Ég vek reyndar líka athygli á því að það eru aðrir þættir í því, m.a. þak á leikskólagjöld og 100% systkinaafsláttur. Við erum að tala um þjónustu við eldri borgara. (Forseti hringir.) Ég hvet bara alla hér inni til að kynna sér útspilið.