157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

lögfesting réttar til leikskólapláss.

[10:36]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég vildi að ég gæti þakkað hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið en það bara kom ekki. Hér var engu svarað frekar en fyrri daginn. Auðvitað viljum við gera líf ungra fjölskyldna betra og létta undir á þessu erfiða tímabili þar til börn komast inn á leikskóla. Um það erum við öll sammála og hæstv. forsætisráðherra þarf ekkert að koma og halda langa ræðu um það. Það eru allir flokkar sammála um það og þetta snýst ekki um það. Það sem gerir þetta alvarlegt er ekki bara upphæðin heldur aðferðin. Hér virðist hæstv. forsætisráðherra hafa stigið fram í krafti embættis síns með kosningaloforð fyrir eigin flokk án þess að gert sé ráð fyrir því í fjármálaáætlun og án þess að nokkur samstaða sé um tillögurnar innan ríkisstjórnarinnar. Þetta er ekki í lagi. Það sem mér finnst alvarlegast í þessu máli er að hæstv. forsætisráðherra virðist hafa stigið yfir mjög mikilvæga línu. Hún var ekki aðeins að kynna stefnu síns flokks, hún var að gera það með því að leggja embætti forsætisráðherra (Forseti hringir.) og forsætisráðuneytið sjálft undir í flokkspólitískan gjörning. Í lýðræðisríki eigum við að geta treyst því að valdamestu embætti ríkisins (Forseti hringir.) séu ekki notuð til að blása upp kosningaloforð eins stjórnmálaflokks. Hvernig réttlætir hæstv. forsætisráðherra að embætti hennar hafi verið notað (Forseti hringir.) til að gefa kosningaloforði Samfylkingarinnar yfirbragð opinberrar stefnu ríkisstjórnarinnar?