Loftbrú og aðgengi að miðlægri þjónustu.
Frú forseti. Það virðist aðeins vera að skýrast að ekki eigi að lækka það fjármagn sem lagt er til Loftbrúarinnar. Þær áætlanir sem farið var af stað með fyrir um átta árum hafa nefnilega gengið býsna vel eftir. Ég þekki það sjálfur enda var ég formaður þeirrar nefndar sem vann þá skýrslu sem snýr að Loftbrúnni og hef fylgt þessu máli eftir alla mína tíð á Alþingi og reyndar áður í bæjarstjórn á Akureyri. Það er hins vegar mikilvægt að tala skýrt þegar talað er við fjölmiðla vegna þess að nú þegar hafa landshlutasamtökin, bæði norðan heiða og á Austurlandi, óskað eftir fundi með þingmönnum um þetta mál. Það er því gríðarlega mikilvægt að tala skýrt þegar rætt er við fjölmiðla. Það var meira að segja saga núna í vikunni um að þetta fjármagn ætti að fara í Ísafjarðardæmið. Það er gott að búið er að semja um Ísafjarðarflugið en það er svo mikilvægt að það séu réttar upplýsingar sem við erum með í dæminu. Aðalatriðið er að ráðherrann er búinn að segja að ekki eigi að minnka það fjármagn sem rennur til Loftbrúarinnar. Útfærslan, það má skoða hana. Enda var, þegar farið var af stað í þessa vegferð með Loftbrúna, talað um eðlilega endurskoðun. En aðalatriðið hér er að ráðherra segir að ekki eigi að draga úr fjármagni til Loftbrúarinnar.