157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

fjármögnun Fljótaganga.

[10:59]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Ég stend samt eftir með spurninguna: Hvernig eigum við að fjármagna verkefnið? Það kemur ekki til með að standa á mér að vera viðstaddur þegar það verður byrjað að grafa Fljótagöng. Mín spurning sneri fyrst og fremst að þessu: Hvernig ætlum við að fjármagna framkvæmdina? Hæstv. ráðherra svaraði því ekki hvort þetta ætti að koma eftir á eða þá bara í næstu fjárlögum. Ég sé það ekki í fjármálaáætlun. Ég sé það bara engan veginn í fjármálaáætlun að gert sé ráð fyrir Fljótagöngum. Það liggur alveg fyrir, og það hefur hæstv. ráðherra sagt, að göngin sjálf fara ekki inn í innviðafélag fyrr en að lokinni framkvæmd. Það er alveg skiljanlegt vegna þess að umferðarþunginn um þau er þannig að þau eru ekki fjárhagslega sjálfbær. Það er lykilatriðið. Lykilatriðið er: Hvar eru peningarnir í Fljótagöngin?