157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

fjármögnun Fljótaganga.

[11:01]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir spurninguna. Svo ég ítreki það: Innviðafélagið kæmi að því að fjármagna hluta Fljótaganga. Þegar innviðafélagið er komið af stað verða settar tekjuberandi eignir inn í félagið; Hornafjarðarfljót, Vaðlaheiðargöng og Ölfusárbrú þegar þar að kemur. Þetta tekjustreymi má taka lán út á í innviðafélagið, sem sagt gíra þetta tekjustreymi. Þessar ráðstöfunartekjur — félagið gæti þá tekið lán sem menn gætu þá sett inn til greiðslu á Fljótagöngum. Það er hægt. En það er rétt sem kom fram að það kemur til greina að þegar framkvæmdin er búin þá taki innviðafélagið við göngunum og fái tekjustreymið, alveg eins og með Vaðlaheiðargöng sem eru að fara inn í félagið, Ölfusárbrú og Hornafjarðarfljót. Þetta eru framkvæmdir sem verður lokið, tveimur af þessum framkvæmdum er lokið, Vaðlaheiðargöngum og Hornafjarðarfljóti, og þá fær það tekjustreymið. (Forseti hringir.) Hinn hlutann þarf að fjármagna á fjárlögum en við tökum bara eitt ár í einu. Á næsta ári þarf kannski 3 milljarða. Það getur vel verið að innviðafélagið gæti tekið lán fyrir 3 milljörðum og sett þá í Fljótagöng út á tekjustreymið.