157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:02]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég get ekki látið hjá líða að ávarpa það hér að þessi liður, óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra, er löngu orðinn vitagagnslaus. Hér mæta ráðherrar og svara aldrei nokkrum sköpuðum hlut, aldrei nokkurn tímann. Ég vil minna á að hér situr framkvæmdarvaldið og ber að svara löggjafarvaldinu þeim spurningum sem til þess er beint. Þannig er sætaskipan í þessum þingsal. Hér situr framkvæmdarvaldið andspænis löggjafarvaldinu. Það er grafalvarlegt að forsætisráðherra sjái ekkert athugavert við það að stíga yfir línuna og beita forsætisráðuneytinu í pólitískum tilgangi eins og hér var gert um síðustu helgi, bara af því að hún er formaður Samfylkingarinnar og bara af því að hún er (Forseti hringir.) jafnaðarmaður. Það er lína þarna á milli. Ef forsætisráðherra Íslands sér það ekki þá erum við í vandræðum og það er alvarlegt mál. Það var nefnilega forsætisráðuneytið sem boðaði til þessa fundar, (Forseti hringir.) boðaði til hans til að kynna ófjármagnað, ósamþykkt kosningaloforð Samfylkingarinnar. Þetta er misbeiting á valdi og ef hæstv. forsætisráðherra sér það ekki þá er okkur vandi á höndum.