157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:04]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur og minni hæstv. forseta á að hann er forseti þingsins alls. Hér spurði hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir skýrra og skilmerkilegra, eðlilegra spurninga um mikið grundvallarmál. Hún fékk ekki svör. Hæstv. forsætisráðherra talaði um eitthvað allt annað. Skömmu síðar spurði ég hæstv. forsætisráðherra út í mál sem varðar það hvort ríkisstjórnin sé að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu á fölskum forsendum, blekkja þjóðina, og hæstv. forsætisráðherra talaði um eitthvað allt annað. Það er ekki óþekkt, frú forseti, og hefur aldrei verið, að kallað sé fram í ef brýna nauðsyn ber til og það gert í hófi. Þarna var sannarlega þörf á því. En þá hrekkur hæstv. forseti í vörn fyrir hæstv. forsætisráðherra sem, eins og hæstv. forsætisráðherra minnti á hér áðan, er formaður Samfylkingarinnar. Hæstv. forseti Alþingis má ekki stjórnast af því. Hann er forseti þingsins alls.

(Forseti (ÞSv): Hér gilda sömu reglur um alla hv. þingmenn og hæstv. ráðherra þegar kemur að ræðutíma og framíköllum úr sal.)