svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Það er auðvitað stórmerkilegt að heyra það að fyrrum borgarstjóra í Reykjavík, hv. þm. Degi B. Eggertssyni, finnist ekkert að því að misbeita valdi forsætisráðuneytisins. Þetta kemur kannski bara heim og saman við það sem við sjáum í þessari misbeitingu valds og hvernig Samfylkingin fer með valdið í þessu landi eftir að hún komst að stjórnartaumunum. Þetta er auðvitað alls ekki í lagi. Mig langar líka að benda á eina ágæta staðreynd, að Samfylkingin, eins og aðrir stjórnmálaflokkar, nýtur ríkisstyrkja, sem reyndar Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema en það er annað mál. Vegna þessara ríkisstyrkja er Samfylkingin með þrjá starfsmenn á sinni skrifstofu. Einn þeirra er m.a. verkefnastjóri sveitarstjórnarmála. Ég hefði haldið í mikilli einfeldni minni að hann myndi mögulega senda þessa pósta en ekki aðstoðarmaður forsætisráðherra því að það er alls ekki í lagi að forsætisráðuneytið og forsætisráðherra fari hér í einhvern pólitískan einleik fyrir einn ríkisstjórnarflokk, sama hversu umhugað honum er um sveitarstjórnarmál. Hv. þingmanni og formanni Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, er líka mjög mikið í mun um að koma Samfylkingunni frá völdum í borginni til að reyna að bjarga henni. En hún hefur samt ekki sent neina pósta úr sínu tölvupóstfangi á Alþingi til að græja þetta. (Forseti hringir.) Það er bara gott fyrir fólk að vita að fyrrum borgarstjóra Reykjavíkur, hv. þm. Degi B. Eggertssyni, (Forseti hringir.) finnist ekkert að því að misbeita valdi Stjórnarráðsins. Þetta er upplýsandi fyrir fólkið í landinu.