svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegur forseti. Ég kem hér fyrst og fremst til að ítreka ánægju mína með það að búa í samfélagi þar sem það er stóra málið að pólitískur aðstoðarmaður hafi látið vita að forsætisráðherra yrði á tilteknum fundi. Í þessu tilviki greinilega fundi sem er viðkvæmur, kosningafundi þar sem er verið að kynna áherslur Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningum. Mér finnst fullkomlega eðlilegt að formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra komi að því og undirstriki þannig með þunga þá forystu sem Samfylkingin hefur í leikskólamálum í landinu, þá forystu sem Samfylkingin hefur varðandi kjör barnafjölskyldna. Barnafjölskylda með tvö börn á leikskóla borgar 450 þús. kr. meira á ári bara vegna þess að hún býr í Kópavogi og notar sér átta tíma leikskólaþjónustu en ef hún byggi í Reykjavík. Þetta er pólitík og forsætisráðherra er í pólitík. Ég ætla ekki að leggjast í einhverjar hártoganir (Forseti hringir.) um það hvort pólitískur aðstoðarmaður sé embættismaður. Hann er það ekki. En ef það er aðalatriði málsins ætla (Forseti hringir.) ég að leyfa stjórnarandstöðunni að tala um það. Við viljum tala um málefni barnafólks og kjör fólksins í landinu, það sem á þeim brennur.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að þingmenn eiga að virða ræðutímann.)