svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Sigmars Guðmundssonar og þingflokksformanns Viðreisnar þar sem hann segir að þetta sé áhugaverð umræða. Þetta er mjög áhugaverð umræða og mig undrar það verulega að hér skuli fyrrum borgarstjóri Samfylkingarinnar stíga tvisvar í pontu og sjá ekki hvað er rangt við misbeitingu valds forsætisráðuneytisins í þessu máli. Hann fagnar því að búa í lýðræðisríki. Vitið þið hvað, ég geri það líka, ég fagna því mjög, en málið er að í lýðræðisríkjum er embætti forsætisráðherra ekki beitt í pólitískum tilgangi til að upphefja flokk forsætisráðherra. Fyrir þessu er áratugahefð í íslensku samfélagi og íslenskri pólitík og það að hæstv. forsætisráðherra sjái það ekki og að fyrrverandi borgarstjóri sjái það ekki er (Forseti hringir.) grafalvarlegt mál. Við erum einfaldlega að gera meiri kröfur til okkar valdhafa heldur en þetta fólk gerir sér grein fyrir.