mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist erindi, dagsett 15. apríl síðastliðinn, um mannabreytingar í nefndum þingsins á grundvelli 16. gr. þingskapa. Samkomulag er á milli Flokks fólksins og Guðmundar Inga Kristinssonar um að Guðmundur Ingi Kristinsson taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Ásthildar Lóu Þórsdóttur og Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki sæti sem varamaður í stað Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur í sömu nefnd. Einnig um að Jónína Björk Óskarsdóttir taki sæti sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Guðmundar Inga Kristinssonar og Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki sæti sem varamaður í stað Jónínu Bjarkar Óskarsdóttur í sömu nefnd. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar ef enginn hreyfir andmælum.