157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[10:36]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég verð bara að koma hér upp og taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp áður. Eins og þetta mál blasir við mér og þessar upplýsingar sem við lásum um í Morgunblaðinu í morgun — ef það er rétt þá er komin upp allt önnur staða í þessu máli en verið hefur áður, allt önnur staða. Þau orð sem hafa verið látin falla hér í þessum þingsal af hæstv. ráðherrum og ríkisstjórn eldast illa í því ljósi. Ég held því að það sé afar mikilvægt, ég tek undir það með hv. þingmönnum, og mjög nauðsynlegt að við fáum það á hreint hér sem allra fyrst hvort þessar upplýsingar, eins og þær koma fram í þessari frétt Morgunblaðsins, eru réttar eða ekki. Þessar fréttir eru byggðar á gögnum frá utanríkisráðuneytinu sjálfu, nota bene. Þetta er pínulítið þannig, virðulegur forseti, að ef þetta er svoleiðis þá er allt tal um að kíkja í pakkann — við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af því. (Forseti hringir.) En orðfæri ríkisstjórnarinnar, um að kíkja í pakkann, þegar þau eru í raun búin að gera það sjálf og vita nákvæmlega hvað er í honum — það eru ekki fagleg vinnubrögð.