áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Ég skil það mætavel að það eru skiptar skoðanir um Evrópusambandið hér í þessum sal og í samfélaginu. Það er hið eðlilegasta mál. Þetta þingmál sem núna er inni í þinginu er til meðferðar hjá tveimur þingnefndum og auðvitað á þingið að kalla eftir þeim upplýsingum sem það þarf til að vinna málið vel og vandlega. Ég ætla hins vegar að gera athugasemdir við þetta tal um blekkingar, þetta tal um að það sé einhvern veginn verið að reyna að plata þjóðina, þetta tal um það að ríkisstjórn Íslands og ráðherrar — sem eru auðvitað, rétt eins og stjórnarandstaðan, að reyna að vinna þannig að hagsmunir þjóðarinnar verði sem best tryggðir þótt sýnin á það sé ólík. Það er ofur einfaldlega þannig. Það er ekki verið að blekkja. Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið, einfaldlega vegna þess að fyrirkomulagið gerir ráð fyrir því að það verði tvær þjóðaratkvæðagreiðslur í ferlinu. Tvisvar sinnum þarf þjóðin að segja já, tvisvar. (Forseti hringir.) Þeir sem núna tala svolítið mikið gegn þessu ferli eru stundum sömu einstaklingar og hafa sjálfir lofað slíku ferli, (Forseti hringir.) bæði fyrir þingkosningar og eftir þingkosningar. Það er verið að gera það sama núna og þeir menn, til að mynda sá sem hóf umræðuna hér, kölluðu sjálfir eftir á sínum tíma.