áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Hér erum við enn á ný með frekar fyrirsjáanlegum hætti að takast á um Evrópusambandið. Eins og áður er allt gert hér til að þæfa og flækja hið einfalda. Hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, er að sjálfsögðu enn á ný gerð að táknmynd alls ills í þessu ferli. Hún á að vera í Brussel í leynimakki og koma okkur inn í Evrópusambandið bakdyramegin o.s.frv. Þetta höfum við heyrt hér ítrekað og við höfum séð þetta í ræðum og riti og það er með ólíkindum að sitja undir þessu. Þjóðin verður spurð, þjóðin á næsta svar um það hvort við eigum að halda áfram aðildarviðræðum eða ekki. Það er ekki hægt að fara á bak við þjóðina með þjóðaratkvæðagreiðslu? Það er ekki hægt. Það að leiða fram hvað já eða nei þýðir gerum við með því að takast á við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu nú í ágúst, fá samning á borðið; gera það sem Norðmenn hafa tvívegis gert, fá samning og taka afstöðu til hans. Ef samningurinn er okkur ekki þóknanlegur segjum við að sjálfsögðu nei við honum. Það er bara þannig. (Gripið fram í.)Norðmenn eru ekki í Evrópusambandinu síðast þegar ég vissi.