áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Hv. þm. María Rut Kristinsdóttir kemur í pontu og talar um undir liðnum fundarstjórn forseta að hér sé um fyrirsjáanlegt upphlaup eða gagnrýni að ræða, en ég sé mig knúinn til að leiðrétta hv. þingmann því það er nákvæmlega ekkert fyrirsjáanlegt við þetta sem nú er að eiga sér stað. Það var einfaldlega að fljóta upp það sem líklega stóð til að halda eins djúpt niðri og hægt var, staðfesting og upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu sjálfu um að hér sé ekki um neitt að semja. Hér er ekki neinn pakki til að kíkja í undir þeirri hugmyndafræði að hann sé með einhverju móti lokaður og þurfi að opna til að fá að gægjast inn. Það liggur algjörlega ljóst fyrir, og er staðfest í gögnum utanríkisráðuneytisins, hvað er í þessum pakka. Þess vegna þykir mér eðlilegt að málið héðan í frá í umræðunni, bæði í þessum sal og úti í samfélaginu, sé rætt á þeim forsendum en ekki á einhverjum forsendum þess að við séum að fara í samtal við Evrópusambandið til að sækja einhverja sérstaka samninga fyrir Ísland. Það er algjörlega staðfest í gögnum utanríkisráðuneytisins hvað er í boði og það er að aðlagast regluverki Evrópusambandsins.