áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Meiri hlutinn hér kann augljóslega ekki að skammast sín. Fólkið sem stöðugt lýsir áhyggjum af upplýsingaóreiðu tekur hér upp á hinum ýmsu furðubrögðum til að drepa málum á dreif þegar staðreyndirnar liggja fyrir og það frá Evrópusambandinu sjálfu, þýtt af utanríkisráðuneyti Íslands. Menn gera sér upp fávísi, þykjast ekkert skilja og svo þessi furðulega brella sem hv. þm. Sigmar Guðmundsson endurvakti hér, að halda því fram að „okkur finnst þetta“ og „þið segið þetta“, þó að þau séu að halda fram tómri dellu og við séum að benda á staðreyndir, en af því að það eru ólíkar skoðanir þá bara verðum við að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu til að vita hver hefur rétt fyrir sér. Þetta er ekki boðlegur málflutningur á Alþingi, frú forseti. Ég tek undir athugasemd hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hér áðan. Mér finnst alveg tilefni til þess að forseti minni þingmenn á það hvernig eigi að bera sig að hér og leyfi þeim ekki að komast upp með að tala í tvær mínútur um einhverja tóma þvælu eins og eftirlátið var hv. þingflokksformanni Viðreisnar.