áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Í það minnsta hvað mig varðar, þá kalla ég eftir opnum, opinskáum og heiðarlegum samskiptum um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið og afleiðingar þess að segja já eða nei í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Það finnst mér vera verkefni okkar sem erum hér inni í þessum sal. Upplegg ríkisstjórnarinnar er að spurningin feli í sér að halda áfram ferlinu sem var hafið 2009. Í því sambandi verð ég að nefna þá þingsályktun sem var samþykkt þá og liggur þessari vegferð til grundvallar. En þar segir, með leyfi forseta:
„Sú breyting hefur orðið á stækkunarviðræðum að sérstök áhersla er nú lögð á að ríki hafi í raun uppfyllt tiltekin viðmið varðandi hvern og einn kafla áður en samningar um þá eru opnaðir og einnig áður en þeim er lokað. Í þessu felst að sem minnst er gefið af frestum til að uppfylla skilyrðin áður en köflum er lokað heldur er þeim ekki lokað fyrr en ákveðnum markmiðum er náð í framkvæmd og með innleiðingu löggjafar í viðkomandi ríki.“
Þetta er kjarnamálið varðandi aðlögunina sem ætti þá að hefjast ætli menn að halda þessari vegferð áfram. Það þarf bara að horfast í augu við þetta og ræða efnislega.