áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegur forseti. Við skulum halda staðreyndum til haga. Forráðamenn ríkisstjórnarflokkanna hafa einmitt talað um full yfirráð yfir auðlindum landsins. Ég endurtek: Full yfirráð yfir auðlindum landsins. Við skulum líka horfa til sagnfræðinnar í þessum efnum. Hvað gerðist þegar við sömdum um Evrópska efnahagssamninginn? Hvernig fóru Steingrímur Hermannsson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins, og Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi formaður Alþýðuflokksins, að? Á endanum fór það svo að þeir náðu samningum um markaðsaðgang fyrir fisk innan Evrópusambandsins án þess að það hefði nokkur áhrif á yfirráð Íslendinga yfir auðlindinni. Þannig fór um samning þann. Við skulum hafa þessa sagnfræði í huga. (GÞÞ: Já, algjörlega. )— Algjörlega, og þess vegna hefur reynt á þetta áður. Það hefur reynt á þetta áður. (GÞÞ: Hættu nú.) Ég sé að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hristir hér hausinn eins og heyra má en við skulum bara hafa þessa sagnfræði í huga.