157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

Störf þingsins.

[11:07]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Það er ofur einfaldlega þannig að maður hefði haldið að allir þingmenn í þessum sal og allir landsmenn væru svolítið samstiga í því að samfélagið okkar ætti ekki að vera útilokandi, að við ættum að taka utan um alla hópa, kannski ekki síst börn og ungmenni sem upplifa sig stundum í erfiðum og óþægilegum aðstæðum og verða jafnvel fyrir aðkasti vegna þess. Ég verð að fá að segja að það hryggir mig mjög að varaformaður Miðflokksins talar ekki með þeim hætti, því miður. Það gera heldur ekki frambjóðendur flokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Mér finnst dapurlegt, virðulegi forseti, í umræðu um regnbogafána við skóla, að menn skuli stilla því þannig upp, eins og varaformaður Miðflokksins gerir, að sá fáni sé við hún vegna þess að það sé verið að styrkja tilfinningu skólastjórnenda eða annarra starfsmanna fyrir eigin botnlausu manngæsku og að þetta sé óþægilegt brot á pólitísku hlutleysi skólanna. Við erum að tala um tilveru fólks. Fólk sem upplifir sig stundum utan garðs og þessi tiltekni fáni er ekkert annað en tákn um það að við viljum taka utan um alla hópa samfélagsins. Allir hópar samfélagsins eru velkomnir, ekki síst í skólunum okkar. Þetta er smættað niður í brot á pólitísku hlutleysi, rétt eins og hinsegin samfélagið sé bara með einhverja pólitíska skoðun, að þetta sé einhvers konar hugmyndafræði, að samkynhneigð sé hugmyndafræði. Og það sé þá bara einhvern tímann seinna á lífsleiðinni hægt að skipta um hugmyndafræði eins og pólitíska skoðun.

Ég ætla að leyfa mér að fordæma svona málflutning ofur einfaldlega vegna þess að hann setur stóran hóp Íslendinga í þá stöðu að þau upplifa sig ekki velkomin, (Forseti hringir.) að tilvist þeirra, sjálf tilvist, kenndir þeirra og hneigðir, sé bara einhver pólitísk hugmyndafræði. (Forseti hringir.) Þau upplifa sig ekki velkomin. Hættum að vera hrædd við fána, sérstaklega fána sem eru tákn fyrir mannréttindi og að allir séu velkomnir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)