Störf þingsins.
Frú forseti. Við í Viðreisn höfum verið skýr. Velferð barna og ungmenna á að vera í forgangi og ekki bara í orði heldur líka í verki. Í kosningabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar töluðum við um mikilvægi þess að styðja við börn og fjölskyldur og grípa fyrr inn í þegar þörf væri á. Nú erum við að standa við það. Við erum að standa við það. Við höfum sett 1,4 milljarða í að stytta biðlista. Við höfum tryggt 32 milljarða aukningu í heilbrigðiskerfið. Börnin okkar eiga ekki að þurfa að bíða eftir aðstoð. En það stoppar ekki þar. Á sveitarstjórnarstiginu ætlum við að halda áfram að ganga í verkin. Við viljum efla samþætta þjónustu í leik- og grunnskólum og frístundum svo að börn fái stuðning á réttum tíma á réttum stað. Við ætlum að vinna markvisst að því að fækka nemendum á hvern kennara til að styrkja einstaklingsmiðaða kennslu, bæta starfsumhverfi og auka gæði menntunar. Þetta gerist ekki nema með góðu samstarfi og samtali, með samstarfi ríkis og sveitarfélaga og samtali við starfsfólk skólanna; með samtali með öllum við borðið um sameiginlega framtíðarsýn og skýra aðgerðaáætlun fyrir leik- og grunnskóla landsins. Þetta er kjarninn. Viðreisn lofar ekki bara, Viðreisn framkvæmir. Og því munu börn og fjölskyldur finna fyrir.