157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

Störf þingsins.

[11:17]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Við lifum á tímum skautunar þar sem ótti er orðinn að pólitísku verkfæri. Við sjáum víða um heim að leiðtogar ná völdum með því að einfalda flókin vandamál, ala á ótta og benda á sökudólga, og það virkar stundum. Ekki vegna þess að fólk sé illa innrætt heldur vegna þess að fólk er hrætt, upplifir ekki að á það sé hlustað og finnur ekki fyrir réttlæti og þegar fólk upplifir það leitar það annað, stundum í einföld svör, stundum í öfgar. En þetta er ekki bara eitthvað sem gerist úti í heimi. Við sjáum merki um þetta hér heima líka. Við sjáum það í umræðunni þegar aðalatriði verða aukaatriði og aukaatriði verða að aðalatriðum. Þegar deilt er um það hvort fáni sé ógn. Þegar talað er eins og þjóðerni sé vandamál í sjálfu sér erum við að missa fókus. Þetta snýst ekki um fána, þetta snýst um fólk og stærsta hættan eru ekki táknin sjálf heldur þegar við hættum að hlusta á hvert annað. Við verðum að horfast í augu við okkar eigin ábyrgð. Við í stjórnmálum höfum ekki alltaf hlustað nægilega vel. Ég hef orðið vör við þetta á Alþingi. Hér er oft mikið talað og lítið hlustað. Það er talað til að ná stjórn, til að tefja mál, til að koma í veg fyrir framgang meiri hlutans, og oftast snýst það meira um form en innihald.

Virðulegur forseti. Ég er stolt af því að hafa fengið að starfa með jafnaðarfólki hér á þingi. Við höfum lagt okkur fram um að hlusta, farið um landið, talað við fólk og tekið það sem sagt er alvarlega. Við erum á vegferð, við erum að breyta kerfum, byggja upp innviði og rjúfa kyrrstöðu og það getur verið óþægilegt fyrir kerfi sem hafa staðið lengi óhreyfð og fyrir þá sem hafa alltaf stjórnað en nú misst völdin. En markmiðið er skýrt, jöfnuður og samfélag þar sem allir fá að tilheyra og enginn situr eftir. Það er alltaf leiðin út úr skautun.

Að lokum. Nú er tíma mínum hér á þingi að ljúka í þetta sinn og ég vil þakka fyrir mig. Þetta hefur verið lærdómsríkur og skemmtilegur tími og þrátt fyrir allt þá er þessi vinnustaður, Alþingi, frábær og sérstaklega allt fólkið. Og eitt enn: Ég mun koma aftur. [Hlátur í þingsal.]