Störf þingsins.
Frú forseti. Í morgun birtist sú frétt að greiningardeild Landsbankans spáir því að stýrivextir verði 8,25% fyrir árslok. Þetta eru slæmar fréttir. Vextir eru nú þegar 7,5%. Vaxtalækkunarferlinu lauk fyrir nokkru. Núna sjáum við fram á áframhaldandi verðbólgu og áframhaldandi hækkun vaxta. Þetta eru auðvitað vonbrigði. Í aðdraganda kosninga var reitt hátt til höggs, miklar yfirlýsingar gefnar um hvernig ætti að leysa þennan vanda og þá eftir atvikum um ætlað getuleysi fyrri ríkisstjórnar til að gera eitthvað í þessu máli. En þetta er veruleikinn sem við búum í. Þjóðarbúið er í þröngri stöðu, erfiðri stöðu sem er gerð verri vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Þar er af nægu að taka. Fyrst ber auðvitað að nefna samþykkt síðustu fjárlaga í jólamánuðinum, launavísitölumálið sem gagnrýnt var mjög, bæði af okkur í stjórnarandstöðunni en líka af Seðlabankanum. Nú er svo til umfjöllunar fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem hefur verið gagnrýnd harðlega af fjármálaráði. Vandamál þessarar ríkisstjórnar er að hún hlustar ekki á gagnrýni, hlustar ekki á ábendingar, er ekki til í að endurskoða plön sín, ekki heldur þegar þau virka ekki.
Ég vil segja núna: Hér er einstakt tækifæri til þess að gera gangskör að því að bæta ríkisfjármálin. Hér inni á þingi er fullt af stjórnmálamönnum og fullt af stjórnmálaflokkum sem segjast vera frjálslyndir. Við eigum að nýta þetta tækifæri í að vinna saman að ráðdeild í rekstri ríkisins, minnka regluverkið, auka frelsi til athafna og lækka álögur. Nýtum tækifærið sem við höfum. Hefjum þetta samtal og gerum þetta saman.